Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgóða ræðu. Ég held að við séum öll sammála um að við stöndum hér frammi fyrir ákveðnu vandamáli eða áskorun sem við Íslendingar hljótum að vilja leysa. Hvernig svo sem það kom til, því að ég heyrði að hv. þm. Sigríður Á. Andersen reifaði það hér ágætlega áðan en svona er staðan í dag og því langaði mig að spyrja hv. þingmann tveggja spurninga. Í fyrsta lagi: Er hv. þingmaður þeirrar skoðunar að við eigum að láta reyna á þetta mál fyrir EFTA-dómstólnum því að við getum gefið okkur að það endi þar ef áfram heldur sem horfir? Í öðru lagi: Kemur til greina og hafa fulltrúar Miðflokksins skoðað það af alvöru hvort við þingmenn getum búið svo um hnútana í einhverri þverpólitískri sátt að við höfum áhrif á þessa lagasetningu sem er til umfjöllunar hér og færum hana til betri vegar? Ég hef þá í huga fordæmi til að mynda í orkupakka þrjú. Ég velti þessu upp.