Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Af því að hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir nefndi hér orkupakka þrjú í lokin er rétt að taka fram að það mál fór ekkert sérstaklega vel eins og er m.a. að koma í ljós þessi misserin. En vissulega gerði þingið einhverjar úrbætur á því máli, ekki hvað síst vegna þess hversu lengi hv. þingmenn Miðflokksins höfðu leitast við að útskýra innihald þess máls. En hvað varðar þetta mál tel ég að það sé sannarlega reynandi, annað væri bara glapræði, og mikilvægt að Alþingi, nú þegar þetta mál að lokinni 1. umræðu fer til nefndar, geri hvað það getur til að fjalla um málið, bæta það og helst auðvitað að komast að þeirri niðurstöðu að það sé ótækt því við megum ekki gleyma því, alþingismenn, að við höfum mikilvægu hlutverki að gegna. Það er ekki bara hlutverk okkar að mæta hér og ýta á atkvæðagreiðslutakkana eins og ætlast er til, allra síst af hálfu meiri hlutans, ríkisstjórnarinnar. Við erum ekki bara hér til að taka ákvarðanir sem aðrir, hvort sem það er hæstv. forsætisráðherra eða hæstv. utanríkisráðherra, ætlast til þess að við tökum. Okkur ber skylda til þess að meta málið, hverjum og einum, og taka ákvörðun í samræmi við samvisku okkar. Í því samhengi má minna á að enginn sest hér á Alþingi öðruvísi en að sverja eið að stjórnarskrá Íslands. Þetta er mál sem óhjákvæmilega varðar stjórnarskrá Íslands. Það eru ólíkar skoðanir á því með hvaða hætti það varði stjórnarskrána, hvort þetta sé skýrt brot á stjórnarskránni eða ekki, en það er öllum ljóst, virðist mér, að þetta varðar stjórnarskrána og fyrir vikið þurfa þingmenn að fara sérstaklega varlega.