Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og ætla ekki að eyða löngum tíma í að reifa hér orkupakka þrjú. Við getum þó verið sammála um það að það hafa a.m.k. ekki dunið yfir okkur ragnarök. Við erum ekki orðin heitavatnslaus og illa þefjandi, svo ég rifji nú eitthvað upp úr þessari umræðu. En mér finnst jákvætt að heyra að hv. þingmaður kemur með þessum hætti að borðinu, er jákvæður í garð þess að við gefum okkur tíma til að skoða þetta og útilokar ekki að við getum komist að einhverri sameiginlegri niðurstöðu. Ég tek undir brýningu hv. þingmanns til okkar sjálfra og til annarra þingmanna um að við gefum gaum að hlutverki okkar hér á Alþingi og ég gat ekki betur heyrt en að hæstv. ráðherra gæfi góð fyrirheit um að gefa okkur vinnufrið til þess og þá vonast ég bara til þess að við getum hafist handa fyrr en seinna.