Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Eins og hv. þingmaður hefur eflaust gert sér grein fyrir þegar hann nefndi orkupakka þrjú aftur þá þarf ég að bregðast við því. En samanburðurinn er samt ágætur því að í umræðu um það mál var því aldrei haldið fram að um leið og gengið yrði frá þeim orkupakka yrðu hér ragnarök. Ég hélt því sannarlega aldrei fram að heitt vatn yrði úr sögunni eða nokkuð slíkt. Það var hins vegar reynt að draga upp skrípamyndir af umræðunni af hálfu þeirra sem studdu málið á sínum tíma. Það sem hins vegar orkupakki þrjú hefur leitt okkur fyrir sjónir og varðar þetta mál er það sem bent var á í langri umræðu um það mál að áhrifin koma fram smátt og smátt. Við sjáum þau núna koma fram í kröfum á orkufyrirtæki og orkuflutningsfyrirtæki sem virðast ekki hafa íslenskar aðstæður eða hagsmuni íslenskra neytenda í huga heldur eitthvað allt annað en svona gerist þetta smátt og smátt. Eftirgjöf á fullveldi gerist sjaldan öll á einu bretti nema hugsanlega ef land er hernumið. Til að skýra þetta og það sem við horfum fram á núna þá hef ég oft vísað í skýringar Mátyás Rákosi, sem var leiðtogi ungverskra kommúnista, þegar hann útskýrði með hvaða hætti kommúnistarnir hefðu náð fullu valdi í Austur-Evrópu. Hann sagði: Við tókum ekki öll völdin strax. Við gerðum þetta með þeim hætti að við tókum eina sneið í einu — þetta var kallað salami-taktíkin — og pössuðum okkur að taka ekki það stóra sneið að það vekti viðbrögð. Menn létu sig hafa það þó að ein sneið færi í einu en fyrr en varði var pylsan búin, allar sneiðarnar voru búnar og fullveldi landanna var farið í fang kommúnistastjórna. Þetta er það sem við þurfum að passa okkur á, frú forseti. Svona er þetta gert og hér erum við að tala um býsna stóra sneið.