157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

3. mál
[13:26]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hér erum við aftur mætt til að ræða bókun 35 og eitt af því sem hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson talaði um í sinni ræðu voru undarlegar skýringar ráðherra á að fólk fari á mis við réttindi ef bókun 35 verði ekki innleidd. Ég skil bara ekki hvernig þingmaðurinn getur hafnað þessu þar sem það er bara alveg ljóst að fólk hefur farið á mis við rosalega stór réttindi af því að bókun 35 var rangt innleidd á sínum tíma. Þar nægir bara að vísa til eftirmála hrunsins sem hv. þingmaður, þegar hann var forsætisráðherra frá 2013, gerði ekkert í að leiðrétta svo að það sé tekið fram. Það má leiða líkur að því að bara út af því hafi a.m.k. 15.000 fjölskyldur misst heimili sín, af því að bókun 35 var ekki rétt innleidd. Þingmaðurinn sagði einnig: Ríkisstjórnin getur bara innleitt neytendarétt. Hún gerði það. Ríkisstjórnin árið 1995 innleiddi evrópskan neytendarétt inn í íslensk lög. Sú lagasetning fékk nákvæmlega sömu málsmeðferð og lagasetningar sem koma frá ráðuneytunum, nákvæmlega sömu málsmeðferð. Hún fékk fulla þinglega meðferð en íslenskir dómstólar gátu látið eins og hún væri ekki til af því að bókun 35 hafði ekki verið rétt innleidd og fólk getur haft skoðanir á því og fagnað því eða harmað. En ástæðan fyrir því að ég stend hér í dag er að bókun 35 var ekki rétt innleidd vegna þess að það leiddi til um 15 ára baráttu sem ég og minn maður þurftum að standa í fyrir okkar réttindum og fengum þau samt ekki.