Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég er nú búinn að vera hér í allmörg ár en þetta var eitt af sérkennilegustu andsvörum sem ég hef fengið af ýmsum ástæðum. Hér var vísað í eftirmála hrunsins og gefið til kynna að einhvern veginn hefðu þau mál öll bara leysts ef búið hefði verið að innleiða bókun 35. Það er þvert á móti. Það er bara þvert á móti: Hvernig fóru mál heimila á Grikklandi, Írlandi, Portúgal, Spáni og mörgum Evrópuríkjum sem þurftu ekki einu sinni að innleiða bókun 35 af því að þau voru aðilar að regluverki Evrópusambandsins? Fóru þau betur eða verr en á Íslandi og er hv. þingmaður búinn að gleyma dómum, m.a. Hæstaréttar, um gengislánin þar sem fjölmörg heimili fengu niðurfellingu lána upp á milljónir króna, í sumum tilvikum jafnvel tugi milljóna króna? Telur hv. þingmaður að Hæstiréttur hefði komist að þeirri niðurstöðu ef bókun 35 hefði verið innleidd með þeim hætti sem hér er lagt til? Nei, hann hefði ekki gert það. Telur hv. þingmaður, sem leyfði sér að halda því fram að í tíð ríkisstjórnar áranna 2013–2016 hefði ekkert verið gert til að innleiða þessa bókun 35 að fullu, sem er satt, að fyrir vikið hefði ekkert verið gert til að bregðast við stöðu heimilanna? Jú, það var meira gert til að bregðast við stöðu íslenskra heimila en í nokkru öðru ríki eftir alþjóðlegu fjármálakrísuna 2007–2008 og það gerðum við í krafti fullveldisréttar Íslands og getu Alþingis til að setja lög sem henta okkar aðstæðum. Ef þessi bókun 35 hefði verið innleidd með þessum hætti á þeim tíma hefði það þvælst fyrir okkur í hverju skrefi.