157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

3. mál
[13:31]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég furða mig á vanþekkingu þingmannsins vegna þess að nú erum við farin að tala um hvernig allt bítur í hvers annars skott. Í fyrsta lagi þá voru á Grikklandi og Spáni og öllum þessum löndum sem þingmaðurinn nefndi hvorki verðtryggð né ólögleg gengistryggð lán og ef dæmt hefði verið samkvæmt þessum neytendarétti sem var í lögum nr. 7/1936, að þá hefði ekki þurft að grípa til neinna aðgerða í hans ríkisstjórnartíð fyrir þessi heimili. Það voru engar niðurfellingar á gengistryggðu lánunum. Ef ég tek bara mitt dæmi þá var lánið upphaflega 30 milljónir, fór upp í 74, það var dæmt ólöglegt og þar með féll það aftur niður í 30. En nei, samkvæmt dómum Hæstaréttar var það hækkað upp í 45 milljónir og settir á það seðlabankavextir upp á 18%. Það var lækkunin sem við fengum. Við fengum lækkun úr því sem hún átti aldrei að vera niður í 45. Það er ekki lækkun. Það fór niður í 30 og var hækkað um 50% á einu bretti. Það var það sem var gert og láttu mig vita það. Ég ætla bara að segja það, með mikilli virðingu fyrir því sem ríkisstjórn hv. þingmanns gerði þó á þeim tíma, að það hefði ekki þurft að grípa til aðgerða ef dæmt hefði verið eftir neytendaréttinum og bókun 35 hefði verið rétt innleidd. Þá hefði staða þessara heimila verið allt, allt önnur.