157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

3. mál
[13:34]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Mér þykir rétt að hefja umræðuna, a.m.k. mína ræðu, í þessu máli sem er endurflutt hér á þessu þingi með því að vísa til ummæla hæstv. utanríkisráðherra í andsvörum við bæði mig og aðra eftir framsögu hennar hér fyrr í dag í þessu máli. Séu einhverjir í vafa eftir ræðu hæstv. utanríkisráðherra, þá hef ég fyrir mitt leyti ávallt stutt alþjóðasamninga og fríverslun milli ríkja og fríverslunarsamninga eins og EES-samningurinn er. Þótt hæstv. utanríkisráðherra hafi verið hér í þessum þingsal lengst allra sem hér voru kjörnir í síðustu kosningum og sé jafnvel nokkuð eldri mér að æviárum líka, þá ætla ég að leyfa mér að fullyrða það að ég hafi þó lengri pólitíska reynslu af því að tala fyrir fríverslun milli landa heldur en hæstv. utanríkisráðherra. Þar með er ég ekki að gera lítið úr áhuga hennar á fríverslun eða alþjóðasamstarfi hvers konar. En ég vildi bara rétt taka það fram vegna þess að því var slengt hér fram með afar skætingslegum hætti að úr því að Miðflokkurinn hefði áhuga á að taka til máls í þessu máli og benda málefnalega á agnúa á því væri hann að sýna sitt rétta andlit, sem væri það að vera á móti EES-samningnum. Um það snýst þetta mál ekki.

Þetta mál er einn angi af EES-samningnum og ég fyrir mitt leyti get áréttað það að EES-samningurinn hefur verið að mörgu leyti til framfara fyrir íslenska þjóð. Það er mikið rætt um réttindi manna samkvæmt EES-samningnum og í þessu máli sérstaklega er reynt að halda því til haga að mögulega fari réttindi einstaklinga forgörðum. Þar fara menn hins vegar engum orðum um mögulegar skyldur, og ekkert bara mögulegar; með EES-samningnum eru svo sannarlega lagðar ríkar skyldur á bæði fyrirtæki og heimili og einstaklinga hér á landi. Mér finnst bara rétt að nefna þetta aðeins í samhengi fyrir þá sem eru kannski ekki alveg innvígðir inn í þennan EES-samning, að þar er ekki bara um réttindi að ræða heldur líka skyldur. Ég kem kannski aðeins inn á það síðar í tengslum við hið margnefnda fæðingarorlofsmál. Þar er ekki eingöngu um réttindi að ræða sem menn telja að hafi farið forgörðum gagnvart tilteknum einstaklingi heldur er einmitt líka um að ræða skyldu sem menn þurfa líka að hafa í huga.

Virðulegur forseti. Mig langar hér í upphafi að víkja að tilurð þessa máls. Ég vil halda því fram að framkvæmd EES-samningsins hafi verið svo til hnökralaus í þau yfir 30 ár sem hann hefur verið við lýði, algerlega hnökralaus. Auðvitað hafa komið upp ýmis vandkvæði, túlkunaratriði þar sem menn greinir á hvernig eigi að túlka ýmsar reglur sem stafa frá Evrópusambandinu. Íslenskir stjórnmálamenn eru þar ekki einir í hópi. Um túlkun tiltekinna lagatexta er deilt um alla Evrópu. Af og til kemur upp ágreiningur. Menn setjast niður og reyna að leysa úr honum. Eftir atvikum fer ágreiningur fyrir einhverjar úrskurðarnefndir eða dómstóla og menn virða það í þessum ágætu ríkjum sem mynda EES-svæðið, að þar með ljúki þeim ágreiningi ef leyst er úr honum fyrir æðsta dómstól viðkomandi landa eða eftir atvikum í sambandinu. Þetta er bara alveg eðlilegt ferli í réttarríki og það þarf ekki að gera það neitt tortryggilegt þó að það komi upp spurningar um hvort tilteknar reglur eigi mögulega við í ákveðnum tilvikum í einstökum löndum eða séu sérlega óhagfelld sumum löndum en sérlega hagfelld öðrum og þar fram eftir götunum. Þetta er ekkert óeðlilegt. Það þarf ekki að reyna að gera þetta tortryggilegt.

Það er svo sem farið örlítið yfir söguna í þessu frumvarpi og rétt að halda því til haga að í upphafi var það skoðað við gerð EES-samningsins, af íslenskum fræðimönnum af ýmsum sviðum en einkum og sér í lagi lögfræðingum og stjórnmálamönnum á þeim tíma, hvernig ætti að tryggja þessa einsleitni inni á EES-svæðinu sem vissulega EES-samningurinn kallar eftir. Hann kallar eftir ákveðinni einsleitni. Menn gengu svo sem vitandi vits að því að það væri einsleitni sem væri kallað eftir. Það var sérstaklega skoðað hvort það ætti að taka upp þá reglu sem Evrópusambandið sjálft vinnur eftir. Það er allt annað apparat, Evrópusambandið. Þar gilda ákveðnar forgangsreglur. Var því sérstaklega skoðað hvort með EES-samningnum ættum við að taka upp sambærilega forgangsreglu og Evrópusambandið vinnur eftir. Þetta var skoðað mjög ítarlega í mörg ár. Niðurstaðan var sú að það væri óhugsandi að Ísland tæki upp slíka forgangsreglu. Við gætum veitt einsleitninni vægi í EES-samningnum með öðrum hætti og sú leið var tekin að vísa til árangurs eða túlkunar á íslenskum reglum til samræmis við EES-réttinn og Evrópusambandsreglurnar með því að túlka íslenskar reglur í þá átt sem skuldbindingar EES-samningsins kveða á um en ekki að veita þeim beint forgang. Þetta var skoðað mjög ítarlega.

Af hverju var þessi leið farin? Það voru ýmsar ástæður fyrir því. Menn vildu ekki ganga svo langt, sumir. Það var kannski hugmyndafræðileg afstaða hjá sumum en aðrir, m.a. fræðimenn, bentu á að það væri ekki hægt að taka upp slíka forgangsreglu án þess að breyta stjórnarskránni. Það voru menn ekki tilbúnir í á þessum tíma vegna þess að það væri ekki hægt að fela með slíkri forgangsreglu að verið væri að veita erlendum stjórnvöldum, erlendu valdi, ákveðið vægi hér umfram aðra og menn voru ekki tilbúnir til þess á þessum tíma. Þetta er ástæðan og það hefur gengið ágætlega, bara nokkuð vel myndi ég segja. Þessi framkvæmd á EES-samningnum hefur verið hnökralaus, eins og ég sagði í upphafi, með þessari túlkunarreglu.

Það er ekkert nýtt sem nefnt er í frumvarpinu að fram hafi komið sú skoðun íslenskra fræðimanna og þeirra sérfræðinga sem um málið hafa fjallað, að bókun 35 sé ekki innleidd með fullnægjandi hætti — eða reyndar er það nýtt að það sé ekki með fullnægjandi hætti, vegna þess að það hefur verið afstaða sérfræðinga, m.a. lögfræðinga og stjórnskipunarfræðinga, að hún sé innleidd með fullnægjandi hætti. Það hefur meira að segja verið afstaða bæði Evrópusambandsins og eftirlitsstofnana að bókun 35 og þessi ákvæði sem bókunin lýtur að séu innleidd með fullnægjandi hætti. Hér er hins vegar fullyrt að það sé mat og skoðun þeirra sérfræðinga sem um málið hafa fjallað að hún sé ekki innleidd með fullnægjandi hætti. Það er beinlínis rangt vegna þess að sérfræðingar hafa fjallað um þetta og komist að þeirri niðurstöðu að þetta sé fullnægjandi innleiðing. Svo eru þeir sem t.d. segja: Ja, það hefði kannski þurft að gera þetta í upphafi. En úr því sem komið er þá er ekki hægt annað en að draga þá ályktun að framkvæmd EES-samningsins með þessum hætti sem við höfum iðkað síðustu 30 árin sé nægileg. Meðal annars hefur komið fram í máli Carls Baudenbachers, fyrrverandi dómara EFTA-dómstólsins, að þótt hann hefði haft meiri smekk fyrir annars konar innleiðingu væri fráleitt að halda því fram að þessi athugasemdalausa framkvæmd EES-samningsins af hálfu Evrópusambandsins hingað til eða Eftirlitsstofnun EFTA hafi ekki skapað nokkurn rétt fyrir Ísland. Að sjálfsögðu er það þannig að þegar framkvæmdir eru svo lengi látnar athugasemdalausar þá felst í því ákveðinn réttur.

Nú fara hins vegar að koma dómar Hæstaréttar og er m.a. vísað í þessari umræðu sérstaklega til fæðingarorlofsmálsins. Rétt er að taka fram að við Hæstarétt hefur verið einhver hægvaxta þróun þar sem vísað er til bókunar 35 en hins vegar er það ekki stefna hjá Hæstarétti vegna þess að hann fjallar ekki um mál öðruvísi en með vísan til þeirra málsástæðna sem aðilar máls leggja fyrir Hæstarétt. Hæstiréttur tekur enga sjálfstæða ákvörðun um að fjalla um bókun 35 eða einhverja forgangsreglu. Dómstólar gera það ekki og mega ekki gera það. Þeir eru bundnir af þeim málsástæðum sem aðilar máls í hverju máli fyrir sig kjósa að leggja fyrir dóminn. Það hefur verið nokkuð vaxandi þróun að lögmenn hafa verið að reyna að öðlast rétt fyrir sína umbjóðendur með því að vísa til reglna í Evrópusambandinu. Ég þekki reyndar engin dæmi þess að menn hafi farið fyrir dóm og vísað til þeirra skyldna sem menn hafa ekki þurft að inna af hendi eða hvíli ekki á Íslendingum vegna innleiðingarhalla. Það hefur enginn kallað eftir því. En að sjálfsögðu reynir hvaða lögmaður sem er að telja til allar málsástæður sem geta verið málstaðnum til framdráttar.

Eitt af þessum málum er fæðingarorlofsmálið þar sem vissulega liggur fyrir að það er gert ráð fyrir því að þær tekjur sem menn hafa öðlast eða a.m.k. atvinna sem menn hafa innt af hendi á tilteknu tímabili á EES-svæðinu, slíkt eigi að teljast til réttinda á milli landa. Í þessu máli hafði þessi regla Evrópusambandsins, EES-regla, svo sem alveg verið innleidd réttilega í íslenskan rétt, hún hafði verið innleidd í reglugerð, en þinginu eða þeim ráðherra sem með málið fór hafði láðst að breyta löggjöfinni til samræmis, þ.e. lagastoðinni fyrir íslensku reglugerðinni, þannig að það var misræmi á milli löggjafarinnar og reglugerðarinnar. Þegar menn bera slíkt mál undir dómstóla og segja: Heyrðu, hér er reglugerðin sem segir að hún er réttilega innleidd frá Evrópusambandinu og samkvæmt t.d. bókun 35, sem við ættum að vera búin að innleiða, þá er augljóst að þessi regla hefur forgang, hún hefur forgang á allt annað, hún hefur forgang á lögin. Hæstiréttur hefur engin önnur tök en að svara slíkum málflutningi með vísan til grundvallarreglna í íslensku réttarfari um það að það eru lög sem gilda umfram reglugerðir. Reglugerðir verða að hafa lagastoð. Hæstiréttur hefði getað sagt: Hafi menn haft í hyggju að hafa réttarframkvæmdina eins og reglugerðin kveður á um, þá hefði þurft að breyta lögunum. Það er í rauninni það sem Hæstiréttur er að segja. Það að hann segi — af því að lögmenn vísa til þess að samkvæmt bókun 35 eigi reglugerðin að gilda — lögmaður hefði alveg eins getað sagt að samkvæmt löggjöf í Frakklandi ætti þetta að vera svona. Hæstiréttur hefði svarað því með sama hætti: Það er bara þannig að frönsk löggjöf gildir ekki á Íslandi. Það er það sem Hæstiréttur sagði í þessu máli. Bókun 35 gildir ekki. Hæstiréttur er ekki þar með að segja að bókun 35 eigi að gilda, ekki frekar en hann hefði sagt: Frönsk lög ættu að gilda, það væri betra að hafa frönsk lög hér. Hæstiréttur er ekki að segja það. Hann er bara að svara þessari málsástæðu sem er lögð fram og alveg réttilega. Það kemur ekkert nýtt og þetta ætti ekki að koma nokkrum manni á óvart. Þetta er ekkert nýtt og Hæstiréttur er ekki að kalla eftir því sérstaklega að bókun 35 verði innleidd, burt séð frá kannski — sem ég veit ekkert um og þingið veit ekkert um — afstöðu einstakra dómara. Það getur verið að hún sé með ýmsum hætti.

Ég hins vegar velti þessu fyrir mér, standandi hér árið 2025, og kannski fengist aldrei svar við því ef þetta frumvarp yrði að lögum, það er ekkert víst að það myndi reyna á það. Þó vil ég segja það að þótt ég fari yfirleitt varlega í það að spá fyrir um niðurstöðu dóma og dómstóla — þeir hafa nú verið þannig svona og hinsegin og þeir eru ekki hafnir yfir gagnrýni, ekki einu sinni dómar Hæstaréttar og þeir eiga ekki að vera hafnir yfir gagnrýni þótt ég leggi áherslu á það að með dómum Hæstaréttar hafi menn leitt til lykta tiltekinn ágreining í viðkomandi máli — þá þýðir það ekki að menn geti ekki haft skoðanir á dómnum. Út á það gengur t.d. lagakennsla í dag, að menn verða að hafa akademískt frelsi til að hafa skoðanir á dómum Hæstaréttar þótt menn séu ekki að fjargviðrast yfir dómunum. En hafandi sagt þetta þá ætla ég að leyfa mér að draga í efa að jafnvel þótt þetta frumvarp yrði að lögum þá myndi Hæstiréttur einhvern tímann í framtíðinni raunverulega ýta til hliðar þeirri grundvallarreglu í íslensku réttarfari sem felst í forgangsreglunum, leges posteriores og leges speciales sem fela það í sér að yngri lög ganga framar eldri lögum og sérlög ganga framar almennum lögum. Það er það sem þetta frumvarp er samt að kalla eftir. Ég sé það ekki fyrir mér að Hæstiréttur myndi, þótt þetta mál myndi ná fram að ganga, dæma með þeim hætti að víkja þessum forgangsreglum til hliðar.