157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

3. mál
[13:50]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Mig langar að ræða bókun 35 út frá réttindum neytenda á fjármálamarkaði. Hafandi verið formaður Hagsmunasamtaka heimilanna í sjö eða átta ár þá þekki ég þau mál nokkuð vel fyrir utan það að hafa barist í mínum eigin persónulegu málum alveg frá hruni, hreinlega út af því að bókun 35 hafði ekki verið rétt innleidd. Ég furða mig pínulítið á málflutningi hv. þm. Sigríðar Á. Andersen um að það sé ekki dæmt samkvæmt bókun 35 af því að það sé ekki komið með bókun 35 fyrir dómi. Ég velti fyrir mér hvernig svoleiðis málflutningur ætti að vera. Það er ekki verið að koma með bókun 35 fyrir dóm. Það sem gerist hins vegar er að af því að hún var ekki rétt innleidd þá hefur Hæstiréttur og dómarar kost á því að líta fram hjá auknum réttindum neytenda sem voru innleidd og vitna bara í séríslensk eldri lög.

Árið 1995, eftir því sem ég best veit, var innleidd í lög um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga, nr. 7/1936, 36. gr. Í henni stendur:

„Samningi má víkja til hliðar í heild eða að hluta, eða breyta, ef það yrði talið ósanngjarnt eða andstætt góðri viðskiptavenju að bera hann fyrir sig. […]

Við mat skv. 1. mgr. skal líta til efnis samnings, stöðu samningsaðilja, atvika við samningsgerðina og atvika sem síðar komu til.“

Staða samningsaðila í málum gegn fjármálafyrirtækjum, milli neytenda og fjármálafyrirtækja, er verulega ólík.

Svo segir í 36. gr. c:

„Við mat á því hvort samningur skv. 1. mgr. sé ósanngjarn skal líta til atriða og atvika sem nefnd eru í 2. mgr. 36. gr., m.a. skilmála í öðrum samningi sem hann tengist. Þó skal eigi taka tillit til atvika sem síðar komu til, neytanda í óhag.

Samningur telst ósanngjarn stríði hann gegn góðum viðskiptaháttum og raski til muna jafnvægi milli réttinda og skyldna samningsaðila, neytanda í óhag. Ef slíkum skilmála er vikið til hliðar í heild eða að hluta, eða breytt, skal samningurinn að kröfu neytanda gilda að öðru leyti án breytinga verði hann efndur án skilmálans.“

Þetta er nákvæmlega það sem gerðist og var litið fram hjá í gengislánadómunum. Það var ekki af því að það var ekki vísað í bókun 35. Það var enginn að fara með bókun 35 fyrir dóminn. Það var verið að fara með neytendarétt fyrir dóminn. Hefði þessu verið fylgt, þessum skilmálum sem hérna eru, þá hefði lögmætisákvæði samnings verið vikið til hliðar en samningurinn látinn standa að öðru leyti. Það er það sem málið snýst um. Mál neytanda fyrir dómstólum snúast aldrei um bókun 35. En af því að hún var ekki rétt innleidd þá geta dómstólar litið fram hjá henni, fram hjá auknum rétti neytenda.

Ég ætla að fara í fljótu bragði yfir nokkur dómsmál þar sem þetta hefur skipt máli í baráttu neytenda fyrir réttlæti sem hefur bara verið mjög erfitt að fá fyrir dómstólum að stórum hluta og jafnvel í aðalatriðum út af því að bókun 35 hefur ekki verið rétt innleidd. Að sjálfsögðu ættu dómstólar að fara að neytendarétti þó að bókunin hafi ekki verið rétt innleidd en þeir hafa ekki gert það af því að einhvern veginn virðist vera í þeim að standa frekar með fjármálafyrirtækjunum.

Ég ætla að byrja á þessu fæðingarorlofsmáli sem hér hefur verið rætt um. Það snerist í stuttu máli um það að íslensk kona sem hafði verið búsett í Danmörku og starfað þar varð barnshafandi og kom heim til Íslands til að fæða barnið og taka fæðingarorlof. Fæðingarorlofssjóður ákvarðaði henni aðeins lágmarksgreiðslur í fæðingarorlofi, ekki 80% af meðaltekjum, þar sem eingöngu var litið til tekna á Íslandi en ekki þeirra tekna sem hún hafði í Danmörku. Konan taldi það m.a. andstætt grundvallarreglu EES-samningsins um frjálsa fólksflutninga og frjálsa för launþega á Evrópska efnahagssvæðinu að taka hvorki tillit til þeirra launa sem hún hafði aflað í Danmörku á viðmiðunartímabili né stöðu hennar á íslenskum vinnumarkaði eftir að hún flutti til landsins.

Hér er rétt að hafa í huga að umrædd grunnregla EES-samningsins var lögfest með lögum nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið. Þetta er komið í íslenskan rétt. Þetta eru orðin íslensk lög. En dómstólar byggðu aftur á móti á séríslenskri reglu í lögum um fæðingarorlof frá árinu 2000, með síðari breytingum, sem girti fyrir að tekið væri tillit til tekna sem foreldri hefði unnið til utan innlends vinnumarkaðar. Bæði í dómi héraðsdóms og Hæstaréttar var fjallað sérstaklega um bókun 35 og tekið skýrt fram að sú forgangsregla sem þar væri kveðið á um hefði ekki verið lögfest og þess vegna væri ekki hægt að beita þeirri meginreglu sem kom fram í eldri lögum um Evrópska efnahagssvæðið frá 1993 framar séríslensku reglunni í hinum yngri lögum um fæðingarorlof.

Hér má fullyrða að hægt hefði verið að komast að annarri niðurstöðu og konunni í hag ef forgangsregla samkvæmt bókun 35 hefði verið réttilega innleidd í íslensk lög.

Nú ætla ég aðeins að tala um mál neytenda á fjármálamarkaði. Það eru gengislánamálin. Þar er hæstaréttardómur nr. 471/2010, vaxtadómurinn, þar sem stefndi, sem var neytandi, byggði mál sitt m.a. á lögum um neytendalán, nr. 121/1994, og 30. gr. samningslaganna sem ég nefndi áðan, nr. 7/1936, sem fólu bæði í sér innleiðingu á EES-tilskipunum. Hefði verið farið eftir þeim þá hefðu upphaflega umsamdir vextir átt að gilda eða jafnvel falla alfarið niður og ekki hefði mátt skipta þeim út fyrir aðra og óhagstæðari vexti sem ekki hafði verið samið um. Dómstólar byggðu niðurstöðu sína ekki á þeim réttilega innleiddu EES-reglum heldur séríslenskum ákvæðum laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, sem leiddi til óhagstæðari — ég vil reyndar taka sterkar til orða, til skelfilegrar niðurstöðu fyrir neytandann. Þar voru íslensk lög látin gilda framar EES-reglum, öfugt við það sem bókun 35 kveður á um.

Eftir þennan dóm voru svo gerðar breytingar á vaxtalögum með lögum nr. 151/2010 sem festu fyrrnefnda niðurstöðu frekar í sessi. Þetta eru hin margfrægu Árna Páls-lög. Með þeim var sem sagt skotið lagastoðum undir þennan dóm eftir að hann var kveðinn upp, sem er náttúrlega eitthvað sem aldrei á að eiga sér stað í vestrænu landi, sem telur sig byggja á lögum og rétti, en það er önnur, verri og lengri saga en svo að ég hafi tíma til að fara yfir hana hér.

Eftir þennan skelfilega dóm sem braut svo gróflega á réttindum neytenda með skelfilegum afleiðingum fyrir þúsundir heimila, þar á meðal mitt eigið, reyndu neytendur ítrekað í fjölmörgum málum sem á eftir komu að byggja rétt sinn á fyrrnefndum EES-reglum. Samt var alveg sama hvað var reynt. Alltaf voru niðurstöður dómstóla á sama veg og séríslensku lögin látin gilda framar réttilega innleiddum EES-reglum, öfugt við það sem bókun 35 kveður á um.

Verðtryggingarmál. Það er hæstaréttardómur 243/2015, Íbúðalánasjóður. Deilt var um lögmæti þess að innheimta kostnað í formi verðbóta af verðtryggðu láni en í málinu lá ljóst fyrir að neytendur hefðu aldrei verið upplýstir um þann kostnað þrátt fyrir skyldu lánveitanda til að upplýsa skýrlega um allan kostnað vegna lántöku. Í öðru sambærilegu máli hafði verið aflað ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins sem staðfesti að það samræmdist ekki EES-tilskipun um neytendalán, sem hafði verið innleidd með lögum um neytendalán, nr. 121/1994, að undanskilja kostnað í formi verðbóta af verðtryggðu láni við útreikning á heildarlántökukostnaði og árlegri hlutfallstölu kostnaðar. Við úrlausn málsins fyrir Hæstarétti reyndi á þessar tvær ólíku en nátengdu reglur, annars vegar um skyldu til að upplýsa um heildarlántökukostnað án nokkurra undantekninga og hins vegar um skyldu til að upplýsa um árlega hlutfallstölu kostnaðar. Hæstiréttur ákvað að túlka 1. mgr. 12. gr. laganna um neytendalán þannig að orðalag hefði þrátt fyrir allt heimilað lánveitendum að undanskilja kostnað í formi verðbóta við útreikning árlegrar hlutfallstölu kostnaðar. En með hliðsjón af áliti EFTA-dómstólsins jafngildir það því að sú regla hafi bara ekki verið réttilega innleidd í íslensk lög heldur hafi í staðinn verið sett séríslensk regla sem gerði vægari kröfur um upplýsingaskyldu vegna hinna séríslensku verðtryggðu lána. Hin reglan í lögunum um heildarlántökukostnað innihélt aftur á móti ekkert slíkt orðalag sem hefði mátt skilja sem neina undanþágu frá skyldu til að upplýsa um allan kostnað vegna lántöku af verðbótum meðtöldum og var sú regla því réttilega innleidd í íslensk lög.

Niðurstaða málsins, sem var neytendum að sjálfsögðu í óhag, byggðist þannig á því að Hæstiréttur beitti séríslenskri lagareglu eða ranglega innleiddri EES-reglu um árlega hlutfallstölu kostnaðar framar réttilega innleiddri EES-reglu um heildarlántökukostnaðinn, þvert gegn því sem bókun 35 kveður á.

Svo er það vaxtamálið sem er í gangi núna fyrir dómstólum. Ég fjallaði um þetta mál í ræðu minni í vor. Í því máli braut Hæstiréttur blað í sögu sinni síðastliðið vor þar sem hann fór fram á — hann vísaði málinu ekki til baka þannig að það færi í gegnum öll dómstigin aftur heldur fór hann fram á að það yrði aftur flutt fyrir Hæstarétti. Sá málflutningur átti sér stað í þessari viku, ég held að það hafi verið í fyrradag. Í bréfinu sem Hæstiréttur skrifaði vísaði hann í fyrsta skipti í sinni sögu í 36. gr. laga nr. 7/1936, sem er evrópski neytendarétturinn. Þannig að já, ég held í vonina að Hæstiréttur muni ekki henda þessu út þrátt fyrir að bókun 35 hafi ekki verið réttilega innleidd, en við getum ekki verið viss.

Við skulum aðeins fara yfir þennan dóm. Þar var deilt um lögmæti skilmála fasteignaláns til neytenda um breytilega vexti. Ég vísa í dóm Héraðsdóms Reykjaness frá 12. nóvember 2024. Ekki var fjallað sérstaklega um bókun 35 í dómnum en til hliðsjónar var haft álit EFTA-dómstólsins í sambærilegu máli þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að sams konar skilmálar samræmdust ekki EES-tilskipun um fasteignalán til neytenda. Þrátt fyrir álit EFTA-dómstólsins var niðurstaða dóms héraðsdóms samt neytendum í óhag og byggðist m.a. á því að í íslensk lög, sem innleiddu tilskipunina réttilega, hefði verið bætt við séríslensku viðbótarákvæði sem heimilaði skilmála af því tagi sem um ræddi. Dómurinn taldi önnur ákvæði laganna ekki geta vikið þeirri reglu til hliðar og má því segja sem svo að hún hafi verið látin gilda framar réttilega innleiddum EES-reglum, þvert gegn áskilnaði bókunar 35. Málinu var því áfrýjað til æðri dómstóla og jafnframt sótt um leyfi til að skjóta því beint til Hæstaréttar fram hjá Landsrétti. Þetta var gert, það var sem sagt samþykkt. Nú vill Hæstiréttur taka málið upp aftur.

Fastlega má búast við því — ég hlýddi ekki á málflutninginn, gat það ekki — að fyrir Hæstarétti verði einkum tekist á um þetta samspil á milli réttilega innleiddra EES-reglna eins og þær hafa verið túlkaðar af EFTA-dómstólnum annars vegar og hins vegar hina séríslensku reglu sem kemur fram í síðari málsgrein 1. mgr. 34. gr. laga nr. 118/2016, um fasteignalán til neytenda. Fallist Hæstiréttur á afstöðu héraðsdóms gæti niðurstaðan orðið neytendum í óhag vegna þess að forgangsregla samkvæmt bókun 35 hefur ekki verið lögfest.

Það hefði skipt öllu máli að ná þessu máli í gegn í vor. Við erum að tala hérna um milljónir til neytenda sem bankarnir eiga að greiða neytendum í oftekna vexti. Ef Hæstiréttur dæmir eins og hann hefur áður gert í þessum málum og hunsar neytendarétt út af því að bókun 35 hefur ekki verið réttilega innleidd þá er það á Miðflokkinn. Við skulum bara hafa það á hreinu.

Ég ætla að lesa upp úr frétt frá RÚV frá 24. febrúar 2024 þar sem vitnað er í Róbert Spanó, fyrrverandi forseta Mannréttindadómstóls Evrópu:

„Róbert segir að það sé rangt að bókun 35 feli í sér atlögu að fullveldi Íslands. Hann segir að hún feli aðeins í sér að Alþingi geti ekki í ógáti svipt fólk réttindum sem það hafi þegar fengið með lagasetningu á grundvelli EES-samningsins. Alþingi sé eftir sem áður heimilt að setja hver þau lög sem kynnu að svipta fólk þessum rétti en þá verði þingið að taka skýrt fram að það sé vilji þess við lagasetninguna.“

Róbert Spanó er íslenskur, hann er a.m.k. ekki frá Evrópu eins og Baudenbacher sem þið eruð alltaf að vísa í.