157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

3. mál
[14:11]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það felst ekki nein ásökun í því þegar ég dreg það fram ef menn flytja sömu ræðuna aftur og jafnvel aftur. Ég tel það frekar kost, a.m.k. ef efni ræðunnar er eins og hjá hv. þingmanni sem var nú frekar tyrfið, þannig að það er ekki útséð um að maður kannski nái samhengi ræðunnar fyrr en við þriðju eða fjórðu ræðu. Ég segi það ekki til hnjóðs þótt menn endurtaki sig hér í ræðustól. Ég dreg í efa hins vegar og ég þyrfti að fá nánari skýringar á því ef hv. þingmaður telur að einhver regla hafi verið réttilega innleidd og að menn hafi verið sammála því fyrir dómi, Hæstarétti og á öllum öðrum dómstigum eða bara a.m.k. fyrir dómi, og reglan sé hér í lagasafninu en að dómstólar hafi litið fram hjá henni af því að bókun 35 hafi ekki verið innleidd.

Ég átta mig ekki alveg á þessum málflutningi. Málið snýst um það auðvitað, eins og í fæðingarorlofsmálinu, og mögulega einhverjum öðrum líka, að mál hefur verið innleitt eingöngu í reglugerð sem hefði kannski átt að vera og ekkert kannski, það hefði þá þurft að vera kveðið á um regluna líka í löggjöf. Þegar það var, eins og í fæðingarorlofsmálinu, ekki innleitt nema með reglugerð en látið hjá líða að stilla löggjöfina af, af þeirri ástæðu er gerðin ekki réttilega innleidd. Það er hægt að leiðrétta með aðkomu löggjafans. Skyldi það hafa verið gert? Já, það var gert 30. júní síðastliðinn, þá gekk í gildi löggjöf sem á að mæta þessu. Ég er ekki einu sinni viss um að menn séu síðan sammála um þá löggjöf og hvernig hún verður túlkuð. Hún gerir ekki ráð fyrir því að menn taki tillit til tekna sem menn öðluðust í útlöndum, heldur leggja að jöfnu íslensku tekjurnar og dreifa þeim yfir níu mánaða tímabil, eða þetta fæðingarorlofstímabil. En það á kannski eftir að koma upp ágreiningur um það líka. Það er þetta sem ég bendi á. Það þarf að innleiða reglurnar og ef það er gert með röngum hætti þá er auðsótt mál að lagfæra það með réttri innleiðingu. Það hefur (Forseti hringir.) ekkert með bókun 35 að gera. Ekki nokkurn skapaðan hlut.