157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

3. mál
[14:13]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Nú er ég eiginlega alveg hætt að skilja hv. þingmann. Hún endaði hér á að segja ef reglur að hafa verið innleiddar með röngum hætti þá er ekkert mál að gera það og innleiða með réttum hætti. Það er nákvæmlega það sem við erum að gera með bókun 35. Við erum að innleiða hérna með réttum hætti eitthvað sem var rangt innleitt upphaflega. Hv. þingmaður fór að tala um reglugerðir og lög og vísaði í reglugerðir, að það hefðu verið reglugerðir í fæðingarorlofsmálinu. Ég þekki það ekki jafn vel og hin málin sem að varða neytendur þannig að ég ætla að tala um þau. Þar er bara í lögunum. Lög um samningagerð, umboð og ógilda samninga, nr. 7/1936 og 36. gr. er í lögunum. (Gripið fram í: Já.) Já, hún er í lögunum þannig að það er ekkert að innleiðingunni á þessari grein. En ástæðan fyrir því að dómstólar nýttu sér af einhverjum ástæðum — og ekki biðja mig um að útskýra það, þeir tóku greinilega afstöðu með bönkunum eftir hrun —  þeir fundu leið til þess að líta fram hjá neytendaréttinum og það var að bókun 35 hefði ekki verið réttilega innleidd. Þess vegna þurftu þeir ekki að horfa á neytendaréttinn heldur fóru í vaxtalögin og fóru að tala um einhverja allt aðra hluti og bara sviptu neytendum þessum rétti út af séríslenskum lögum. Þetta er það sem málið snýst um og ég skil ekki að ég skuli standa hérna og þurfa að útskýra það. Það hefur enginn neytandi farið með bókun 35 fyrir dómstóla og það fer enginn með bókun 35 fyrir dómstóla. Við erum að innleiða hana til þess að dómstólar geti ekki litið fram hjá réttindum okkar.