157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

3. mál
[14:16]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, það er kannski ekki nema von að þetta standi aðeins í hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur. Ég get náttúrlega ekki talað fyrir hönd dómara, ég get bara talað út frá því sem ég veit og því sem staðreyndir og dómar tala um. Staðreyndin er sú að hundruð mála sem snúa að réttindum neytenda á fjármálamarkaði hafa komið fyrir dómstóla og neytendur hafa unnið eitt af þessum hundruðum mála, eitt. Ég get alveg tekið undir að í sumum tilfellum — þó að ég viti reyndar af persónulegri reynslu að þú ferð ekki með mál nema þú sért bara alveg 100% viss út af kostnaði og öllu hinu — hafa neytendur ekki alltaf rétt fyrir sér en að það sé bara í einu tilfelli af einhverjum hundruðum mála, það gengur ekki upp.

Lög nr. 7/1936 og 36. gr. sem innleidd var, sem er innleiðing á evrópskum rétti, eru núna íslensk lög og íslenskur réttur, fékk þinglega meðferð og eru íslensk lög. En af því að bókun 35 var ekki rétt innleidd þá fundu dómstólar leið til að líta fram hjá þessum neytendarétti sem fékk alla þinglega meðferð, fór í gegnum allt sem mál og lög eiga að fara í gegnum á þinginu, þetta var innleitt og er þar með orðið íslensk lög. Af hverju þurftu þeir þá að tala um séríslensk lög? Þeir vísuðu og töluðu um séríslensk lög og þeir gátu litið fram hjá evrópska neytendaréttinum af því að bókun 35 hafði ekki verið innleidd á réttan hátt.