157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

3. mál
[14:19]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég óttast að við komumst ekki mikið lengra með að fá botn í hvað hv. þingmaður nákvæmlega meinti í ræðu sinni en þetta snýr kannski að því þegar þetta stangast á. En þá fæ ég kannski að spyrja hv. þingmann í seinni spurningu hvort hann hafi engar áhyggjur af þeim lögum þar sem hagsmunir Íslendinga eru betur varðir með þeim lögum sem við sömdum hér á Alþingi en innleiddum gerðum sem kunna að stangast á. Það er svolítið lykilatriði sem ég veit ekki hvort er einhver misskilningur um, þetta snýr að því þegar þetta stangast á. Við vitum alveg að þetta eru allt íslensk lög, gerðir sem er búið að innleiða hér eða þau sem eru samin hér. Við erum að tala um lög sem stangast á. Þess vegna spyr ég: Hefur hv. þingmaður ekki áhyggjur af þeim ótal tilfellum sem eru sennilega mikið fleiri þar sem hagsmunum er betur varið hér því við erum á Íslandi og við erum að hugsa um hagsmuni Íslendinga? Eins hvort hv. þingmaður hafi fengið einhvers konar kynningu á hversu viðamikið þetta kann að vera, hversu oft þetta gæti hugsanlega stangast á eða hvort hún þekki til slíkra dæma. En aðalatriðið er hvort hún hafi ekki áhyggjur af þeim vinkli og eins hvort hv. þingmaður muni þá leggja til, hvað varðar þau lög sem þessi ríkisstjórn leggur til að verði samþykkt á Alþingi, að byrja að setja þá klásúlu að þau eigi að ganga framar reglugerðum frá Evrópu eða sér hún aldrei tilgang í að setja slíkar klásúlur inn?