Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu. Varðandi dómsorð EFTA-dómstólsins og bein fyrirmæli hans í garð Íslendinga í þessu tiltekna máli sem hv. þingmaður nefnir; þá nei, ég get ekki farið djúpt ofan í það, ég verð alveg að viðurkenna það. Ég hins vegar get mér þess til að hér sé bara um að ræða afleiðingu af þessari evrópsku einsleitniskröfu sem við búum við hérna á EES-svæðinu. Það er hins vegar alveg ljóst að einsleitnin, eins og ég nefndi í ræðu minni hérna áðan, á sér ýmsar birtingarmyndir. Það ríkir ekki full einsleitni alls staðar á Evrópska efnahagssvæðinu, ekki endilega milli Ítalíu eða Frakklands eða Spánar, Noregs eða Íslands. Það er alltaf tekið upp að vissu marki tillit til séraðstæðna sem eru svo sannarlega alltaf til staðar í sérhverju aðildarríki. Hins vegar, ef maður þekkir Evrópuréttinn, er alltaf þessi krafa um það að ríkin vinni sína heimavinnu, færi rök fyrir því hvernig sérhagsmunirnir birtast og sýni fram á það að þau hafi reynt með ýtrasta hætti að tryggja samræmingu í beitingu reglnanna.
Úr því að hv. þingmaður minntist á umræðu um EES-samninginn þá bara fagna ég því. Við ætlum á þessu kjörtímabili að einbeita okkur að því að ræða það með opnum og fordómalausum hætti hvernig við ætlum að standa vörð um íslenska hagsmuni. Ég veit að hér er einhvern veginn verið að teygja sig yfir í ESB-umræðuna og þá þjóðaratkvæðagreiðslu sem er fyrirhuguð. Það breytir því ekki að við verðum vonandi alltaf hluti af Evrópska efnahagssvæðinu og við munum alltaf þurfa að leggja mikla áherslu og mikinn kraft í það að gera kröfu um ýtrustu réttindi fyrir íslenska aðila. Það heitir að standa með Íslandi.