157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

3. mál
[14:41]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég er sammála því að við ættum að einsetja okkur það að fjalla hér og beina sjónum að íslenskum hagsmunum í alþjóðasamstarfi. Við erum auðvitað þeirrar skoðunar í Sjálfstæðisflokknum að okkar hagsmunum sé best borgið í EES-samstarfinu og þykir það mjög miður að samflokksmenn hv. þingmanns ætla að eyða dýrmætum tíma og púðri í að afvegaleiða þá umræðu með því að fara af stað í sneypuförina sem aðildarumsókn og aðlögunarviðræður að Evrópusambandinu er. En gott og vel.

Mér heyrist af svörum hv. þingmanns að þetta sé eitt af því fjölmörgu sem við ættum að taka til skoðunar í hv. utanríkismálanefnd. Næg eru verkefnin þar. Við fáum vonandi tíma og frið til þess og ég gat ekki heyrt betur á hæstv. utanríkisráðherra hér fyrr í umræðunni að hún myndi taka tillit til þess. Þannig að ég hlakka bara til samstarfsins í nefndinni.