157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

3. mál
[14:42]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir gott upplegg að málefnalegri umræðu um EES-samninginn. Ég held að það standi ekki á neinum í hv. utanríkismálanefnd Alþingis að ræða það hvernig við getum gert betur í hagsmunagæslu til þess að koma í veg fyrir að hér verði hreinlega samþykkt lög innan Evrópska efnahagssvæðisins sem fara í mjög mikinn bága við íslenska hagsmuni. Maður getur alltaf leyft sér að vona, vegna þess að nú er það bara þannig að það er mjög ríkur þáttur í allri þeirri löggjöf sem frá Evrópusambandinu kemur að það er svigrúm til staðar til að taka tillit til séraðstæðna, ýmist í suðurhluta álfunnar eða norðurhluta álfunnar. Ég nefni hérna t.d. í landbúnaðarþættinum sem reyndar á ekki heima undir EES-samningnum. Þetta er jafn mikill fasti eins og að loknum degi kemur nótt, að það sé tekið tillit til séraðstæðna í löndum innan EES-svæðisins.

Fyrst hv. þingmaður talar um sneypuför, sem henni finnst vera fyrir höndum hér, þá vil ég bara samt sem áður koma því á framfæri að ég er eindreginn stuðningsmaður þess að íslenska þjóðin fái að gera upp hug sinn varðandi þetta stóra mál, þ.e. hvort okkur geðjast tilhugsun að fara í samningaviðræður við Evrópusambandið um hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þetta er eitthvað sem Norðmenn hafa fengið að taka afstöðu til og var gert fyrir talsverðu síðan. Við erum eina EES-landið sem höfum ekki fengið að taka „grundiga“ umræðu út frá þeirri stöðu sem við erum í akkúrat núna. Ég hlakka til þeirrar umræðu vegna þess að ég held að það muni hreinlega — og ég held að hv. þingmaður ætti að fagna þeirri umræðu í ljósi þess að við viljum ræða saman um EES-samninginn og hvernig hann gagnast okkur, hvaða tækifæri búa mögulega frekar núna í því að vera bara áfram EES-land versus það að eiga sæti við borðið sem fullgilt ESB-ríki.