Evrópska efnahagssvæðið.
Forseti. Ég ætla eiginlega að byrja á að þakka hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur fyrir að koma til umræðunnar því að ég held að það þroski þetta mál hraðar ef við tökumst á um hvað er rétt og rangt í þessu máli. En hv. þingmaður nefndi hér hluti eins og réttarbót, það fengist réttarbót með samningnum og ef ég skildi hana rétt væri það að einhverju leyti þegar það snýr að fyrirsjáanleika. Þess vegna langar mig að spyrja: Hvað með fyrirsjáanleikann varðandi þau lög sem við semjum hér á Alþingi, hefur hv. þingmaður ekki áhyggjur af því að sá fyrirsjáanleiki minnki að einhverju leyti? Hefur hv. þingmaður einhverja hugmynd um hver er fjöldi þeirra mála sem þetta mun hafa áhrif á bæði á jákvæðan og neikvæðan hátt? Og þessi réttarbót, hefur hv. þingmaður einhverja hugmynd um hvað hún myndi kosta ríkissjóð, hin svokallaða meinta réttarbót eða áhætta, er ekki endilega fjárhagsleg, er þetta meira bara fyrirsjáanleikinn sem er réttarbótin?