Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir ágæta umræðu um fjórfrelsið. Ég ætla bara til að klára umræðuna um réttarbótina og þann kostnað sem ríkið kæmi til með að hljóta af því að við myndum láta undir höfuð leggjast að samþykkja þá útfærslu sem við stöndum frammi fyrir hér, þá vil ég svara því að ég hef takmarkaðan — auðvitað á mér að vera umhugað um stöðu ríkissjóðs en ég hef meiri áhyggjur af stöðu hins almenna íbúa hér á Íslandi sem fær það veganesti frá þingmönnum Miðflokksins að það sé æskilegra að þeir séu settir í þá stöðu að sækja bara sín mál fyrir dómstólum. Ég hef mjög miklar áhyggjur af hagsmunum þeirra aðila vegna þess að það er í rauninni það sem verið er að leggja upp með, þ.e. að þegar við sjáum að það er misfella, að það er einhvers konar verri réttur sem viðkomandi hefur vegna þess að íslenska ríkið hefur því miður búið að því að bókun 35 hefur vatnast út í dómaframkvæmd og við höfum ekki tekið það skref að leiðrétta það, þá erum við, og ég held að þingmenn Miðflokksins verði að átta sig á því, að senda fólk út í þrautagöngu og segja: Þið verðið bara að sækja þennan rétt. Vegna þess að ég hef ekki séð neina uppbyggilega leið sem lögð er til af hálfu þingmanna Miðflokksins um að þetta sé ekki uppleggið.
Til að svara síðan efnislega þeirri spurningu sem lögð var fram um það hvort mér finnist eðlilegt að fólk vinni einhvers staðar erlendis takmarkað, komi síðan og geti bara gengið að fullum hýpótetískt fæðingarorlofsréttindum, þá finnst mér í prinsippinu — ég er reyndar ekki viss um að það óljósa dæmi sem hv. þingmaður nefndi myndi gera fólki kleift að sækja fulla fæðingaraðstoð eða fæðingarorlofsgreiðslur — mjög mikilvægt að fólk geti flutt á milli landa innan Evrópska efnahagssvæðisins og gengið að þeim félagslegu réttindum sem felast í fæðingarorlofi með sama hætti vegna þess að við skulum ekki gleyma því að við viljum líka fá unga fólkið okkar heim úr námi og þetta hefur mjög mikið að segja í því.