Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Í dómi Hæstaréttar segir um 3. gr. laga nr. 2/1993: „Þannig hefur ekki verið lagt til grundvallar að það ákvæði feli í sér almenna forgangsreglu í samræmi við bókun 35 við samninginn.“ Það er það sem Hæstiréttur segir. Bókun 35 við EES-samninginn segir, og nú verð ég að fara eftir minni, að samningsaðilar, sem er þá annars vegar Ísland og svo hins vegar Evrópusambandið, þ.e. EFTA-ríkin innan EES og Evrópusambandið, skuldbundi sig til að setja í þeim tilfellum, þar sem innlend lagaákvæði rekast á við reglur EES-réttar, forgangsreglu ef þörf krefur með þeim hætti að EES-reglurnar gilda. Það er það sem bókunin segir. Það er það sem við sem segjum út á við.
Hæstiréttur hefur sagt að það hafi ekki verið gert. Það er auðvitað rétt á þann hátt sem þingmaður segir að Hæstiréttur gefur ekkert skipanir til löggjafans með þeim hætti, en það er auðvitað bara með sama hætti og ef Hæstiréttur kemst að því að einhver lög sem Alþingi hefur sett standist ekki stjórnarskrá. Þá gætum við sagt að það kalli ekki á nein viðbrögð, við getum bara haldið áfram að gera allt eins og hefur verið gert. Löggjafinn hefur nú í þeim tilfellum brugðist við með þeim hætti að laga viðkomandi lagasetningu. Þetta er það sem ég vísa til og ég tel að það sé ekki stætt á því að hafa út á við loforð í samningi í bókun 35 um það að við munum setja, ef þörf krefur, forgangsreglu með þeim hætti að EES-reglur gangi framar öðrum lögum og síðan höfum við Hæstarétt sem segir að við höfum ekki gert það. Mér finnst ekki stætt á því að ávarpa það ekki með neinum hætti.