157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

3. mál
[15:13]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Það er alveg rétt að það kemur fram í þessum tiltekna dómi að í 3. gr. felist ekki forgangsregla. Þetta er ekkert nýtt. Þetta er sjálfsagður hlutur og öllum sem að eitthvað þekkja í lögfræði hefur verið kunnugt um frá árinu 1993. Það stóð aldrei til að innleiða forgangsreglu inn í íslenskan EES-rétt eða íslenskan rétt. Það stóð aldrei til, um það var sérstaklega fjallað. Þegar menn fara með mál fyrir dóm og bera því við og segja: Það vantar forgangsregluna, dómstóllinn þarf að beita forgangsreglunni, þá er alveg eðlilegt að Hæstiréttur svari þeirri spurningu og þeirri kröfu með því svari, eins og kemur hér fram, að 3. gr. feli ekki í sér slíka forgangsreglu, bókun 35 hafi ekki verið innleidd þannig. Það er ekkert nýtt í því máli.

Í þessum sama dómi fjallar Hæstiréttur ítarlega um það að skýra skuli lög og reglur til samræmis við EES-reglur og það byggist á rótgróinni lögskýringarreglu norræns réttar um að skýra beri landsrétt til samræmis við alþjóðlegar skuldbindingar sem menn hafa tekið sér fyrir hendur. Það er líka í samræmi við rótgróinn norrænan rétt að það gengur upp að ákveðnu marki. Það mun aldrei ganga svo langt að það ýti til hliðar skýrum lagaákvæðum. Þetta er allt lögfræði 101 og það er ekkert í þessum dómum sem kemur á óvart. Þegar menn segja að Hæstiréttur hafi talað þá er ekkert nýtt í þessu, hann er að benda á augljósan hlut.

Mig langar þá að spyrja hv. þingmann að því hvernig hann telji að Hæstiréttur muni túlka, nái þetta frumvarp fram að ganga, hvernig Hæstiréttur eða dómstólar hér munu líta á afturvirkni eða gildistökuákvæði í þessu frumvarpi. Telur hv. þingmaður að nái þetta frumvarp fram að ganga, (Forseti hringir.) þá hafi þau lög sem renni undan því afturvirk áhrif? Þau hafi áhrif á löggjöf sem þegar hefur verið sett, bæði innleiddan EES-rétt og aðra löggjöf? Hver er afstaða hv. þingmanns til afturvirkninnar í þessu?