Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni ágæta spurningu sem lýtur að afturvirkni laga. Það verður bara dómstóla að túlka það að einhverju leyti. Af því að hér er sagt að það hafi ekkert nýtt komið fram þá var það þannig fljótlega eftir að EES-samningurinn tók gildi að þá komu upp þó nokkur tilfelli þar sem dómstóllinn dæmdi þannig að ef innleidd ákvæði rækjust á við EES-rétt þá gilti EES-rétturinn, t.d. tilfelli bókadómsins um virðisaukaskatt. Þá er reyndar hægt að beita þeim rökum að EES-samningurinn hafi verið nýrri heldur en lögin um virðisaukaskatt með þeim hætti. Mín túlkun á þessu ákvæði er þannig að hér er löggjafinn að reyna að taka afstöðu til þess hvað eigi að gera ef innleitt ákvæði, sem á ekki uppruna í EES-rétti, og ákvæði sem á uppruna í EES-rétti rekast á. Þá er mitt mat að það þýði að ákvæði sem á uppruna í EES-rétti gildi og hafi forgang, óháð því hvenær þessi ákvæði voru leidd í lög.