Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir hans ágætu ræðu. Fyrst hann nefnir tvö dæmi sem hann telur að bókun 35 myndi hafa áhrif á í ræðu sinni, þá ætla ég að spyrja hann nánar út í þau. Í fyrsta lagi varðandi Icesave: Er það skoðun hv. þingmanns að í Icesave-málinu hafi verið tekist á um tvö lagaákvæði, annars vegar lagaákvæði sem var í innlendum lögum og hins vegar lagaákvæði sem var rétt innleiðing EES-reglna? Er það skoðun hv. þingmanns að þetta hafi gengið út á það? (ÞorgS: Útskýrðu þetta aftur. )Er það skoðun hv. þingmanns — af því að bókun 35 snýst um árekstur milli rétt innleiddrar EES-reglu og hins vegar íslenskra laga sem voru ekki leidd í gegnum EES-samninginn — að Icesave-málið hafi gengið út á árekstur á milli EES-reglna og hins vegar íslenskra laga?
Í öðru lagi langaði mig að spyrja um þetta dæmi með atvinnubílstjóra. Nú segir bókun 35 að þegar Alþingi hefur með réttum og skýrum hætti innleitt reglur þá gangi þær reglur fram yfir önnur íslensk lög, þannig að ef Alþingi myndi ákveða að við ætlum bara alls ekki að innleiða reglu um endurmenntun atvinnubílstjóra, þá kemur bókun 35 ekki til kastanna. Bókun 35, svo það sé skýrt, mun ekki neyða okkur til þess að íslenskir dómstólar dæmi eftir lögum sem Alþingi hefur ekki tekið upp, þannig að þetta dæmi er ekki rétt.