157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

3. mál
[15:33]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég ætla að spara hv. þingmanni að fara að lesa bókunina upp, hún er stutt og skýr. Hann þekkir vafalaust orðalagið um skýrt og óskilyrt lagaákvæði. Það sem reyndi á í Icesave-málinu var númer eitt, tvö og þrjú fullveldið. Það sem ég er að gagnrýna er að innleiðing bókunar 35 sé risastórt skref, án aðkomu þjóðarinnar sem er nú eitt af uppáhaldsmálum þessarar ríkisstjórnar, á leiðinni inn í ESB. Ég veit að hv. þingmaður hefur heyrt talað um salamí-aðferðina áður. Þetta byrjar með því, hvort sem það heita orkupakkar eða annað, svo koma forgangsreglur inn. Ég get lesið upp fyrir hv. þingmann, ef hann vill, hvernig bókunin er orðuð en ég held að hann kunni hana utanbókar.

Þá spyr ég á móti: Telur hv. þingmaður að þessir lögspekingar, ég valdi þá ekki af neinu handahófi í ræðu minni, Björg Thorarensen, Davíð Þór Björgvinsson og Stefán Már Stefánsson, vaði bara í villu og svíma, að það sé engin réttmæt ábending í því að bókun 35 sé ekki aðeins slæm fyrir þjóðina heldur beinlínis gangi hugsanlega í bága við stjórnarskrána? Á þetta er ítrekað bent af okkar best menntaða fólki, samt er ekki hægt að svara þessu.

Varðandi hins vegar atvinnubílstjórana þá er ég að renna út á tíma og ræði það kannski í seinna andsvari því ég er líka með talsverða þörf fyrir að tjá mig og taka samtal við hv. þm. Pawel Bartoszek um það mál. Ég hlakka til þegar það mál kemur á dagskrá að eiga skoðanaskipti við þingmanninn.