157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

3. mál
[15:35]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Icesave-dómurinn féll á endanum ekki fyrir Hæstarétti Íslands heldur fyrir EFTA-dómstólnum. Málsvörn íslenska ríkisins í þeim dómi var einmitt sú að Ísland hafi með réttum hætti innleitt þá tilskipun Evrópusambandsins sem varðar innstæðutryggingar, þannig að málsvörn Íslands var einmitt að við hefðum með réttum hætti innleitt þá tilskipun. Dómstóllinn féllst á það og sagði: Í ljósi þess að Ísland hefur með réttum hætti innleitt tilskipunina þá hefur íslenska ríkið gert það sem þurfti og þess vegna féll ekki skaðabótakrafa á ríkið. Í því máli reyndi því alls ekki á það að það væru einhver innlend ákvæði að rekast á við erlend ákvæði og bókun 35 hefði engu breytt um það.

Ég mun aldrei leggja það í vana minn að munnhöggvast við fjarstadda fræðimenn og kalla þá einhverjum nöfnum, þeim nöfnum sem hv. þingmaður notaði. Ég mun aldrei gera þau að mínum, að sjálfsögðu, af því að ég virði mikið þessa fræðimenn og margir þeirra hafa reyndar talað með þeim hætti sem ég hef túlkað frekar sem stuðning við þá leið sem hér var farin heldur en hitt. En öllum þessum fræðimönnum var að sjálfsögðu boðið að senda inn álit og umsagnir í málinu og slíkt verður að sjálfsögðu áfram. Ég ætla kannski að geyma þær hugsanlegu rökræður til nefndarstarfsins og síðari umræðu.