157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

3. mál
[15:53]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir ágæta ræðu. Hún veitti mér viðbúna innsýn í það eða staðfesti hvar ég tel að fulltrúar Miðflokksins séu í þessu máli sem er að einstaklingar sem verða fyrir tjóni, skaða af þeim sökum að Alþingi Íslendinga hefur ekki réttilega innleitt ákvæði EES-gerða — að leiðangurinn að réttarbót er í gegnum Alþingi. Ég vil bara fara þess á leit við hv. þingmann að hann staðfesti þann skilning minn vegna þess að ég gef mér það að hv. þingmaður átti sig á því að áður en Alþingi getur brugðist við responsíft í hverju tilfelli verður einstaklingur að fara í mál við ríkið. Ég vil bara fá það þá frá hv. þingmanni að það sé æskilegri leið en að fara þá leið sem ríkisstjórnin leggur til að Alþingi Íslands samþykki hér í dag.

Í öðru lagi vegna þess að hv. þingmaður vísaði í skrif Markúsar Sigurbjörnssonar, læriföður míns úr lagadeildinni, fyrrverandi forseta Hæstaréttar, hvort hann hafi lesið grein sem hann skrifaði árið 2014 í afmælisrit sem ber yfirheitið, með leyfi forseta: To refer or not to refer vegna þess að ég áttaði mig ekki á því í hvað hann var að vitna þar sem hann hafði eftir honum að það myndi ekki standast stjórnarskrá að samþykkja þá útfærslu sem um ræðir. Ég vildi bara fara þess á leit við hv. þingmann að spyrja hvort hann hefði lesið þessa grein.