157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

3. mál
[15:56]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni Dagbjörtu Hákonardóttur fyrir ágæta tvískipta spurningu. Við fyrri liðnum er því til að svara að íslensk stjórnvöld eru hér daginn inn og út að fjalla um löggjöf sem byggir á gerðum og tilskipunum frá EES. Það er bara hluti af okkar starfi. Við gerum það eftir atvikum, það kemur eitthvað inn, menn telja pólitíska nauðsyn á hinu og þessu á hinum og þessum tímanum. Það er ekkert algerlega fast mynstur á því hvernig þetta er gert. Stundum líkist það kannski of mikið færibandi að mati margra en að öðru leyti þá erum við náttúrlega að taka um þetta ákvarðanir og eiga um þetta umræður og það gildir náttúrlega bara um stór svið.

Ef við tökum t.d. fæðingarorlofsmálið, þá var ekki búið að festa þar í lög eitthvað sem hafði verið innleitt í reglugerð. Það voru mistök sem hafa verið leiðrétt, það var gert í júní, þannig að núna eru réttindi þín ef þú ert að vinna á EES-svæðinu, skilst mér, orðin þannig að þú eigir rétt á fæðingarorlofi þegar heim er komið. Þar lá hundurinn grafinn í því máli og því var breytt á grundvelli löggjafar sem við samþykktum hér á Alþingi. Ég er því bara að benda á að eina leiðin til að gæta að réttindum Íslendinga er ekki að staðfesta að almennt hafi hin útlensku lög forgang yfir hin íslensku, heldur einfaldlega að setja góð íslensk lög sem tryggja réttindin á þeim grunni sem við sjáum í EES.

Varðandi hitt svarið, með greinina hans Markúsar Sigurbjörnssonar, þá hef ég lesið hluta greinarinnar í þýðingu á netinu. Ég hef ekki komist í greinina sjálfa. Þetta hefur áður verið rætt í þessum sal. Hún er ekki auðfundin, þessi margumrædda grein frá 2014. Nú sé ég að hv. þingmaður hefur hana í hendi sér og ég væri mjög áhugasamur um að fá að glugga í hana, ef þess væri kostur. Ég þakka að öðru leyti aftur fyrir ágæta spurningu.