Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er mér ekki bara ljúft heldur skylt að dreifa því sem liggur hér til umræðu í ræðustól Alþingis. Athygli þingheims er vakin á því að þetta stendur öðrum einnig til boða, að fá afrit af þessari ágætu grein. Ég veit nefnilega að hún mun koma hv. þingmönnum á óvart vegna þess að uppleggið í þessari tilteknu grein frá árinu 2014 er í raun það að það er vandkvæðum háð að hafa stjórnarskrána óbreytta með tilliti til þjóðaréttar að mati Markúsar Sigurbjörnssonar. Þessu eru ekki allir sammála. Ég fór yfir það ágætlega í ræðu minni sem ég hélt rétt áðan hvernig það er tekið ágætlega á þeim fyrirvörum, sem Markús Sigurbjörnsson reyndar ávarpar óljóst, með getu Alþingis til að taka afstöðu til ákvæða landslaga sem samræmast ekki ákvæðum Evrópugerða, að þegar tekið er sérstaklega fram í almennum greinargerðum að við munum koma til með að sjá mögulegt ósamræmi þá er það alveg eitthvað sem stenst stjórnarskrá samkvæmt greinargerð.
Svo langaði mig líka bara til þess að óska eftir því við hv. þingmann, vegna þess að hann nefndi það í byrjun að aldrei hafi átt að samþykkja bókun 35 við upphaf EES-samningsins, hver er þá munurinn á forgangsreglu EES-réttarins og beinna réttaráhrifa samkvæmt Evrópuréttinum? Mér finnst að það ætti að vera skylda allra sem taka til máls undir þessum lið í þessu máli, að þeir þekki muninn á þessu tvennu.