Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir ágæta fyrirspurn. Það sem við erum að benda á eru athugasemdir við það að gera það að lögskýringarreglu, forgangsreglu, að lög sem eru ættuð frá Evrópusambandinu gangi framar íslenskum lögum. Að þessu beinist okkar athugasemd. Af því að við erum að tala um grein Markúsar Sigurbjörnssonar, þá segir hann líka, með leyfi forseta, þannig að maður fari einmitt inn á þetta svið:
„Með öðrum orðum gerir stjórnarskráin ekki ráð fyrir því að árekstur á milli ákvæða almennra laga verði leystur með öðrum hætti en beitingu viðurkenndra lögskýringarreglna og veitir löggjafanum hvorki vald né svigrúm til þess að veita tilteknum almennum lögum alfarið forgang gagnvart öðrum.“
Þannig að það er þessi forgangur sem hann segir að standist ekki okkar reglur og það er þá athugasemdin. Hins vegar er — ja, þetta stendur í greininni. Já, við þurfum að fara betur yfir þetta, ég og hv. þingmaður hér í hliðarsal, vonandi. Pólitíkin í málinu er sú áleitna spurning hvers vegna, eftir allan þennan tíma, íslensk stjórnvöld þurfi að innleiða lög sem takmarka okkar fullveldi, takmarka okkar löggjafarvald fyrir Alþingi. Það er pólitíska spurningin. Henni hefur enn ekki verið svarað með afgerandi hætti nema einmitt með vísan til hæpinna forsenda eins og t.d. hæstaréttardóma og annað eins og einhverra dómaframkvæmda. Þær forsendur eru að mínu mati hæpnar og sömuleiðis tel ég einfaldlega að við eigum að gæta hagsmuna okkar með öðrum hætti en þeim að fallast á að þetta þurfi að gera. Það hefur ekkert breyst með afgerandi hætti sem bendir til þess. Það er einfaldlega mitt mat.