Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég nýti tækifærið og ætla að leyfa mér að fara yfir nokkur atriði í þessu frumvarpi þegar það er lagt fram, ekki í fyrsta skipti og ekki í annað skipti. Ég held að það sé mikilvægt að það komi skýrt fram um hvað frumvarpið er ekki. Frumvarpið er ekki um að reglur sem ákveðnar eru í Brussel og eru hluti af EES-regluverkinu gangi sjálfkrafa framar íslenskum lögum. Það er mikilvægt að þetta sé skýrt vegna þess að um þetta ríkir mikill misskilningur úti í samfélaginu. Maður heyrir það á einstaka ræðum hér, ég veit ekki hvort það var óviljandi eða viljandi, að það sé eftirspurn eftir því að fólk hafi þennan skilning á málinu, að málið snúist um að reglur sem verða til í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið gildi sjálfkrafa framar íslenskum lögum ef við gerum þetta frumvarp að lögum. Það er ekki þannig. Þetta á eingöngu við um tvenn íslensk lög þegar þau skarast með einhverjum hætti á. Það er aldrei þannig að reglur sem verða til annars staðar, hafa ekki komið hingað inn, fengið þinglega meðferð í gegnum þrjár umræður og orðið að lögum, eigi einhvern tímann í einhverjum tilfellum við og þær eigi að ganga framar öðrum íslenskum lögum. Það er ekki þannig. Þetta á eingöngu við um íslensk lög. Lagasetningarvaldið er á Alþingi. Það hefur verið þannig, það er þannig og það verður áfram þannig, verði þetta frumvarp að lögum.
Því er haldið fram að þetta sé í raun ekki vandamál, að það sé einfalt og alla vega minni skaði heldur en að samþykkja frumvarpið að menn leiti einfaldlega réttar síns ef á þeim er brotið. Það finnst mér ótrúlega hæpin nálgun. Mér finnst hún ekki virðingarverð, að segja við hinn almenna borgara að ef hann verður af réttindum sem hann sannarlega á að geta gengið að vísum í gegnum samninginn um Evrópska efnahagssvæðið þá þurfi hann einfaldlega að leita réttar síns fyrir dómstólum. Í fyrsta lagi felst í því gríðarlega mikið ójafnvægi — aflsmunur einstaka borgara úti í samfélaginu og ríkisins, fyrir utan það hversu mikil vinna það er. Það er kostnaðarsamt, það tekur tíma og það er ekki á allra færi. Það sem þú ert þá að segja er að þú ert í rauninni að gera kröfu til almennra borgara um að þeir hafi fulla yfirsýn yfir það hvaða réttindi eru tryggð í íslenskum lögum og hvaða réttindi eru tryggð í gegnum samninginn um Evrópska efnahagssvæðið sem viðkomandi borgari ætti sannarlega ef þingið hefði bara staðið rétt að málum, fyrir utan það síðan að jafnvel þótt borgari fari þá leið þá sjáum við af dómaframkvæmd að vegna þess að bókunin er ekki réttilega innleidd að mati æðsta dómstóls á fullvalda og sjálfstæðu Íslandi hafi dómstóllinn ekki heimild til þess að dæma þeim borgara í hag ef reglurnar eru ívilnandi eða réttindin eru ívilnandi í gegnum samninginn um Evrópska efnahagssvæðið vegna þess að dómstólar geta jú bara dæmt eftir gildandi lögum. Þannig að fyrir utan hvað það er ósmart þá er það heldur ekki alltaf einu sinni mögulegt, jafnvel þótt borgari fari fyrir dóm með mál.
Það er mikið gert úr því að þetta hafi jú ekki verið vandamál, og hvers vegna núna? Það er alveg hægt að flytja langa ræðu um þróun hæstaréttardóma, dómafordæmi o.s.frv. í gegnum þessi 30 ár, hvernig samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið hefur aukist að umsvifum og fleiri þættir teknir þar undir og hvernig hann hefur þróast o.s.frv. en það er líka bara hægt að segja: Af hverju núna? Af hverju er það mikilvægt? Vegna þess að Hæstiréttur er búinn að segja það. Hæstiréttur segir að bókunin sé ekki réttilega innleidd. Þar af leiðandi er einn aðili á Íslandi sem getur bætt úr því. Það er löggjafinn á Íslandi sem getur bætt úr því. Hinn valkosturinn er, eins og er líka ákveðin stemning fyrir, að gera ekki neitt. Það er alveg ákvörðun. En þá ertu að gera það vitandi að málið mallar þá og fer áfram, fer til Brussel og þar komast menn að einhverri niðurstöðu. Það er alveg hægt að ákveða það, það er alveg hægt að bíða eftir slíkri niðurstöðu og taka þá málið aftur þegar komin er skýr afstaða þaðan. Það er líka hægt að fá skýra afstöðu þaðan og gera það samt ekki og taka bara einhverjum pólitískum afleiðingum af því, sem ég teldi mjög óskynsamlegt. En ég er bara sjálf þeirrar skoðunar að það sé okkar vinna, að það sé okkar hlutverk hér á Alþingi að bregðast við niðurstöðu Hæstaréttar þegar hann dæmir í máli og segir að bókunin sé ekki réttilega innleidd, sem þýðir að það er þá löggjafans að bæta úr því.
Það eru alls konar upplýsingar og umræða og sjónarmið um þetta mál. Ég geri í fyrsta lagi ekki kröfu til almennings á Íslandi um að honum þyki þetta mál sérstaklega áhugavert, sérstaklega eftirsóknarvert að setja sig inn í það eða sérstaklega auðskiljanlegt. Ég hef átt fjöldann allan af samtölum við alls konar fólk sem hefur áhyggjur af málinu og ég hef undanfarin ár varið töluverðum tíma í það að eiga samtal um það, svara spurningum, segja mín sjónarmið, velta upp kostum og göllum um mismunandi leiðir og ég er ekki að gera lítið úr því að fólk hafi einhverja ónotatilfinningu fyrir málinu. En það sem ég kann ekki við er þegar maður heyrir sjónarmið og punkta og rök stjórnmálamanna sem ég held að þeir hljóti að vita að er ekki alveg sanngjarnt að halda fram, t.d. það að við séum að afsala okkur einhverju fullveldi með því að innleiða bókunina með réttum hætti, vegna þess að ég tek aftur fram, þótt það hafi örugglega komið fram hjá fyrri ræðumönnum í þetta skiptið og sannarlega komið oft fram þegar málið hefur verið lagt fram áður, að það skiptir máli að það sé algerlega skýrt að bókunin sjálf, bókun 35, hefur ekki tekið nokkrum einustu breytingum frá því fyrir um 30 árum, því það er líka það sem er þarna úti, að það sé einhvern veginn ný bókun, hún hafi tekið breytingum og við þurfum bara að taka afstöðu til þess hvort við séum tilbúin að innleiða hana í íslensk lög. Hún hefur ekki tekið nokkurri einustu breytingu, hvorki orðalagsbreytingum né kommubreytingum; engin viðbótarfylgiskjöl með bókuninni frá því fyrir um 30 árum síðan. Þess vegna finnst mér skipta máli að það sé skýrt að lagasetningarvaldið er á Alþingi. Það var þannig, það er þannig og það verður þannig áfram að við lendum ekki í þeirri stöðu að fá inn einhverjar reglur í hvaða formi sem er sem eiga að hafa lagagildi á Íslandi og ef við innleiðum bókun 35 með réttum hætti þá stöndum við frammi fyrir því að það séu reglur sem ekki eru íslensk lög sem ganga framar íslenskum lögum. Við erum eingöngu að tala um íslensk lög sem hafa fengið hér hefðbundna þinglega meðferð í gegnum þrjár umræður, frumvörp sem koma hingað inn og verða að lögum. Þannig að þrátt fyrir að ég skilji að fólk hafi áhyggjur af málinu og ég hef átt mörg samtöl um það þá finnst mér skipta máli að það komi skýrt fram að við erum ekki að brjóta stjórnarskrá. Við erum ekki að framselja fullveldi. Við erum ekki að framselja lagasetningarvald Alþingis ef þetta frumvarp verður að lögum.
Ég heyri líka að stundum er sagt: Já, já, það er sagt að Alþingi geti lagt fram frumvarp eða samþykkt frumvarp og gert að lögum eitthvað sem fer gegn regluverki samningsins um Evrópska efnahagssvæðið en það verður bara aldrei gert. Ja, við höfum gert það. Sú sem hér stendur gerði það. Við lögðum fram frumvarp og við skrifuðum inn í frumvarpið að yrði það frumvarp að lögum þá værum við að ganga gegn regluverki sem við höfðum þegar innleitt í íslensk lög. Við vorum meðvitað að gera það af því að það er pólitísk ákvörðun að gera það, svo færðum við rök fyrir því. Það gerðum við í heimsfaraldri varðandi ferðaskrifstofur. Þar ákváðum við með opin augun að leggja það til við þingið að gera stjórnarfrumvarp að lögum sem færi gegn regluverki sem við höfðum þegar innleitt í gegnum samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Við töldum okkur hafa rökin með okkur í liði. Það hefði alveg getað farið einhverja leið og farið í samningsbrotamál og eitthvað. Við vorum meðvituð um það en við hefðum þá tekið pólitískum afleiðingum af því vegna þess að við töldum rétt að gera það.
Á þessum tímum, þar sem óvissan er hvert sem við lítum að aukast, hvort sem það er í viðskiptamálum, alþjóðaviðskiptum, viðskiptum á milli ríkjasambanda, bandamanna, hvað þetta heitir allt, mjög þverrandi stemning fyrir fríverslunarsamningum, miklir óróatímar í öryggis- og varnarmálum þannig að viðskiptalíf og lönd eru farin að kortleggja hvað mismunandi útgáfur af krísuástandi gætu þýtt fyrir þau lönd, aðfangakeðjur og þar fram eftir götunum, þá finnst mér ábyrgt, skynsamt, eðlilegt og rétt að sinna okkar heimavinnu og gera það sem þarf til að standa hátt og snjallt vörð um mikilvægasta viðskiptasamning sem Ísland á, sem er samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið. Það er alveg hægt að taka einhverja aðra ákvörðun og menn geta alveg fært rök fyrir því að það sé betra eða að það sé pólitískt auðveldara eða að menn vilji gera það af því að þeir ætli ekki heldur að taka afleiðingunum þegar kemur skýrt fram, ef það yrði niðurstaðan, að við þyrftum jú sannarlega að innleiða bókunina rétt. Ég er bara ósammála því og mér finnst sjálfsagt, eðlilegt og skynsamlegt að laga það sem þarf að laga, sem löggjafarvaldið eitt getur lagað, vegna þess að æðsti dómstóll á Íslandi hefur komist að skýrri niðurstöðu um það.
Þrátt fyrir að það megi alveg velta upp mismunandi möguleikum og kannski væri bara þægilegra eða betra eða eitthvað að leyfa málinu að malla til Brussel þá er ég þeirrar skoðunar að það eigi ekkert endilega alveg heima í þessari umræðu vegna þess að mér finnst ekki skipta máli að hvaða niðurstöðu dómstóll í Brussel kemst þegar við erum með fyrir framan okkur niðurstöðu Hæstaréttar sem er æðsti dómstóll á Íslandi. Við virðum þar af leiðandi sjálfstæði hans, lesum niðurstöður hans og bregðumst við ef þess þarf og eins og hann hefur sagt, að vilji menn innleiða bókunina með réttum hætti þannig að hægt sé að taka tillit til bókunar 35 og samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, þá þurfi að gera breytingar. Hæstiréttur gerir það ekki. Ríkisstjórnin ein gerir það ekki. Það er löggjafinn sem getur gert það og ég er þeirrar skoðunar að löggjafinn eigi þar með að sinna sinni vinnu og gera það.