157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

3. mál
[16:18]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og það kom kannski ekki á óvart að hv. þingmaður telji skynsamlega á málum haldið hér, um það þingmál sem hér er rætt. En mig langar í ljósi þess hluta ræðu hv. þingmanns sem fór í að tala um dómstólaleiðina sem einstaklingar og fyrirtæki þurfa að fara til að sækja rétt sinn, eins og þingmaður fór yfir, þá hugsaði ég til þess í samhengi við ræðu hv. þm. Pawels Bartoszeks hér fyrr í dag, sem er formaður utanríkismálanefndar. Mig minnar að á a.m.k. síðasta þingi þegar þetta mál var rætt hafi hv. þm. Pawel Bartoszek verið framsögumaður nefndarálits meiri hluta. Hv. þm. Pawel Bartoszek svaraði andsvari er varðaði dómstólaleið sem einstaklingar og fyrirtæki þyrftu að fara, eða réttara sagt svaraði fyrirspurn um áhrifin á svona breyttri innleiðingu bókunar 35 og hver áhrif hennar væru á gildandi rétt í landinu. Svarið var bara ósköp einfaldlega: Ja, dómstólar munu leiða það í ljós. Hér stóð hv. þingmaður og lýsti því sem mikilli þrautagöngu að fara dómstólaleiðina og sækja rétt sinn. En telur hv. þingmaður að öll ágreiningsmál séu úr myndinni verði þessi innleiðing kláruð með þessum hætti sem hér liggur fyrir, sérstaklega í ljósi þess að formaður utanríkismálanefndar, síðasti framsögumaður nefndarálits meiri hluta, sagði hér mjög skýrt og bara heiðarlega að greiningar lægju ekki fyrir, sagði beinlínis að ef menn ætluðu í slíkar greiningar, og hélt síðan bara áfram, að þá yrði dómstóla að kveða úr um það hvaða breytingar yrðu? Spurningin er bara: Er forsvaranlegt að það verði bara látið ráðast í dómstólaframkvæmd til næstu ára, jafnvel áratuga, og dómstólar verði stíflaðir til að vinna úr því? Hefði ekki verið skynsamlegt að þessi greining lægi fyrir frá stjórnvöldum þegar málið kemur hingað inn til þingsins?