157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

3. mál
[16:23]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Hv. þingmaður kom inn á í ræðu sinni hér áðan að lagasetningarvaldið væri áfram á Alþingi. Mikið rétt og skárra væri það nú. En er það mat hv. þingmanns að innleiðingarmál fái í raun sömu meðferð og umræðu hér í þinginu eins og mál sem verða til annaðhvort í þinginu eða í ráðuneytum og eru lögð fram af ráðherra að þeirra frumkvæði? Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann telji að það sé raunverulega þannig, og þá er ég ekki að spyrja um tæknilega heldur raunverulega hvað umfjöllun varðar, af því að öll höfum við heyrt það á nefndarfundum: Þetta er innleiðingarmál, við getum engu breytt. Telur hv. þingmaður að þarna sé jafnt á með komið þessum tveimur mismunandi gerðum þingmála? Þetta þarf að hafa í huga þegar afturvirknin er skoðuð. Þannig að ég vil líka biðja hv. þingmann um að upplýsa um afstöðuna gagnvart afturvirkninni (Forseti hringir.) í ljósi þess að mikill fjöldi þeirra mála sem nú hafa áhrif með þeim hætti sem þessi breytta innleiðing bókunarinnar leggur til (Forseti hringir.) munu hafa áhrif sem ekki voru fyrirséð þegar þau mál runnu í gegn á færibandinu.