157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

3. mál
[16:25]
Horfa

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni þetta andsvar. Ég er þeirrar skoðunar að þetta sé mikilvægur hluti af umræðu almennt um lagasetningarvald og hvernig frumvörp verða að lögum hér vegna þess að ég þykist vita úr hvaða átt hv. þingmaður er að koma og ég get tekið undir það. Það er oft a.m.k. stigsmunur á því hvernig frumvörp sem eiga uppruna sinn í gegnum samninginn um Evrópska efnahagssvæðið fara í gegnum þingið. Stundum eru algerlega réttmæt sjónarmið að baki því þegar um er að ræða einhverjar tæknilegar uppfærslur á einhverju sem er löngu búið að taka afstöðu til og er engin sérstök ástæða til að ræða í löngu máli í nefndum og kalla til gesti og eitthvað slíkt. Stundum eru mál sem fela í sér töluverðar efnisbreytingar eða bara nýr lagabálkur sem þarf að kortleggja og þá get ég tekið undir með hv. þingmanni, þótt hann hafi ekki notað þau orð en ég þykist vita hvaðan hann er að koma, (Forseti hringir.) að stundum er farið fullfrjálslega með það að eitthvað þurfi ekki umræðu vegna þess að þetta komi í gegnum samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. En þá bendi ég líka á mikilvægi þess (Forseti hringir.) að við vinnum heimavinnuna okkar og sinnum hagsmunagæslu á fyrri stigum.