157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

3. mál
[16:27]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna sem var afskaplega góð og upplýsandi og ein sú besta, held ég, eða með þeim betri sem hafa verið fluttar í þessu máli hingað til, bæði á þessu þingi og því síðasta. Við búum nefnilega við þær aðstæður núna að reynsla hv. þingmanns af þessu máli er ansi góð. Hún hefur tekið þátt í umfjöllun um málið í fleiri en einu ráðuneyti. Hún hefur setið í ríkisstjórn og stjórnarmeirihluta þegar þetta mál hefur verið hér til umfjöllunar og er nú í minni hluta að fjalla um þetta mál þannig að hennar sýn á málið er ansi góð og mjög gott að hlusta á þetta. Ég er með þrjár spurningar til hv. þingmanns um þetta og svörin koma öll fram í máli hennar með ítarlegum rökstuðningi, en mig langar til að fá bara eins stutt svör við þessum þremur spurningum eins og mögulegt er. Í fyrsta lagi: Telur hún að þetta frumvarp og innleiðing bókunarinnar muni takmarka sjálfsákvörðunarrétt og fullveldi þjóðarinnar? Í öðru lagi: Telur hún að innleiðing bókunarinnar með þessu frumvarpi sé brot á stjórnarskrá? Og í þriðja lagi: Telur hún að með innleiðingu á þessu frumvarpi verði skert heimild þingsins til lagasetningar?