Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar. Varðandi fyrstu spurninguna um sjálfsákvörðunarrétt okkar og fullveldi, þá tel ég fullveldi okkar ekki skert eða framselt með þessu frumvarpi enda, aftur, er um að ræða óbreytta bókun sem er orðin 30 ára gömul og við þurfum að hnykkja á orðalagi í okkar löggjöf til að tryggja að hún sé réttilega innleidd sem Hæstiréttur hefur komist að niðurstöðu um að sé ekki staðan. Ég tel bókun 35 og þetta frumvarp ekki brjóta í bága við stjórnarskrá lýðveldisins. Varðandi skerðingu lagasetningarvalds Alþingis: Ekki heldur. Ég nefndi dæmi þar sem við höfum meðvitað, með opin augun, lagt fram frumvarp sem fór gegn innleiddu regluverki í íslenskum lögum og höfum fulla heimild til að gera það. Varðandi stjórnarskrá og svona almennt það sem einhverjir hafa áhyggjur af þá vil ég líka nefna grein fyrrverandi og núverandi forseta Hæstaréttar í afmælisriti EFTA-dómstólsins þar sem þeir segja, með leyfi forseta:
„Það er okkar skoðun að í ljósi þeirrar óvissu sem uppi er varðandi hvort Ísland hafi innleitt bókun 35 við EES-samninginn með fullnægjandi hætti, og vegna þeirrar ósamkvæmni sem gætt hefur í dómaframkvæmd hér á landi varðandi þetta, sé það mikilvægt að íslenski löggjafinn leysi úr vandanum og setji í lög skýrt og óskilyrt ákvæði á þessu sviði og virði þannig þær skuldbindingar sem koma fram í bókun 35.“
Auðvitað geta lögspekingar verið spekingar úr ýmsum áttum en ég tel mjög ólíklegt að núverandi og fyrrverandi forseti Hæstaréttar myndu skrifa þetta skýra grein ef um þetta væri einhver raunverulegur vafi.