Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Mér þótti hálfleiðinlegt að heyra hv. þingmann enduróma rangtúlkun hæstv. utanríkisráðherra varðandi dóma Hæstaréttar, gefa það til kynna að Hæstiréttur hafi fyrirskipað um það — sem hann svo sem hefur ekkert vald til — að breyta bókun 35 með þeim hætti sem hér er lagt upp með. Það eina sem Hæstiréttur gerði var að benda á með hvaða hætti bókun 35 hefði verið innleidd á sínum tíma. Það var ekki tilviljun, það var ekki að ástæðulausu að hún var innleidd með öðrum hætti heldur en forskriftin gerði ráð fyrir. Það var beinlínis tekin ákvörðun um að gera það með öðrum hætti til þess að tryggja fullveldi landsins.
En spurning mín til hv. þingmanns lýtur þó að athugasemdum sem að einnig endurómuðu málflutning hæstv. utanríkisráðherra, athugasemdum sem gáfu það til kynna að upphefðin kæmi alltaf að utan. Við þyrftum á erlenda embættismannavaldinu að halda til að tryggja Íslendingum réttindi. Spurningin er þessi: Geta ekki íslensk stjórnvöld, Alþingi, tryggt þau réttindi sem Alþingi vill, hvort sem það eru öll réttindi sem tryggð eru í Evrópulöggjöf, eða sum þeirra, eða meira til? Svo mætti hafa í huga í þessari umræðu að þetta gildir í báðar áttir. Við getum farið okkar eigin leiðir til að tryggja réttindi okkar borgara með þeim hætti sem við teljum bestan.