157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

3. mál
[16:35]
Horfa

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni þessar spurningar. Ég vil halda því til haga að menn töldu sig vera innleiða bókunina með fullnægjandi hætti á sínum tíma. Það var ekki tekin ákvörðun um að innleiða hana með ófullnægjandi hætti; skilja eftir réttaróvissu, lagaóvissu og segja að við ætlum ekki að innleiða með réttum hætti en við ætlum samt að vera í EES, heldur töldu menn sig vera að gera það með fullnægjandi hætti. Það er hægt að spyrja hvað breyttist og við getum farið í langt mál um það hvað hefur breyst en fyrir mér er kjarni málsins og það sem breyttist niðurstaða Hæstaréttar. Þar segir, með leyfi forseta:

„Þannig hefur ekki verið lagt til grundvallar að það ákvæði“ — sem er þá skýringaregla 3. gr. — „feli í sér almenna forgangsreglu í samræmi við bókun 35 við samninginn.“

Ég nefni síðan þá tilvísun sem ég fór yfir áðan þar sem núverandi og fyrrverandi forseti Hæstaréttar tala enn þá skýrar. Það er ekki dómsniðurstaða heldur grein en auðvitað taka menn orð sínum alvarlega og vanda það með hvaða hætti þeir skrifa og hvaða ábyrgð þeir bera.

Varðandi seinni spurninguna þá tel ég alls ekki að við þurfum alltaf einhverja sérfræðinga að utan til þess að tryggja hér einhverjar reglur eða réttindi. Við hins vegar tókum ákvörðun um að vera í EES-samstarfinu, að taka upp EES-samninginn, vera aðili að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Við tókum ákvörðun um það á sínum tíma. Við styðjum það vonandi áfram að það sé þannig. Þar með tökum við ákvörðun um og tökum að okkur að tryggja að við stöndumst þær skuldbindingar sem við sjálf tókumst á hendur. Það er líka alveg hægt að velta því upp hvort við þurfum ekkert svona samstarf, (Forseti hringir.) hvort við þurfum kannski ekki samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, af því að við getum tryggt þessi réttindi sjálf.