157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

3. mál
[16:38]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Það er dapurlegt að heyra hv. þingmann enn og aftur enduróma hæstv. utanríkisráðherra með rakalausum fullyrðingum um að ef menn fallist ekki á allt sem Evrópusambandið krefst af okkur þá séu menn á móti EES-samningnum og geti alveg eins verið laus við hann. En ég ætla ekki að verja tíma í það því ég þarf að spyrja um annað. Það lýtur að þessari innleiðingu bókunar 35. Það er vissulega rétt sem hv. þingmaður sagði að við Íslendingar tókum ákvörðun um að verða aðilar að EES-samningnum en það var á þessum forsendum, m.a. með innleiðingu bókunar 35 eins og hún lítur út. Það var fullnægjandi innleiðing og eins og meðal annarra Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, hefur bent á bendir afskiptaleysi áratugum saman til hins sama og fyrrverandi utanríkisráðherra benti á í prýðisgóðum bréfum (Forseti hringir.) til Eftirlitsstofnunar EFTA. Er hv. þingmaður ósammála því sem kemur fram í vörnum Íslands í þeim bréfum?