Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir ágætis yfirferð sem mér finnst bera með sér hans skilning á því hvað bókun 35 átti að fela í sér þegar lögin um Evrópska efnahagssvæðið voru leidd hér í lög og samþykkt á sínum tíma. Ég vil byrja á að segja að mér finnst þessi umræða um margt þroskaðri og dýpri heldur en sú sem fór fram hér í sumar. Ég get alveg heils hugar tekið undir þau sjónarmið hv. þingmanns að við verðum að fara vel og vandlega yfir málið í utanríkismálanefnd vegna þess að það er ástæðulaust að fara af stað með einhverjum hroka um að hér séu allir að misskilja nema í stjórnarmeirihlutanum. Það eru virðingarverð sjónarmið sem koma upp í sambandi við stjórnskipulegan fyrirvara og það hvernig við skýrum stjórnskipunarréttinn og þær óskráðu stjórnskipunarskýringarreglur sem gilda í lögfræðinni.
Forseti. Ég ætla að biðja hv. þingmann um að segja afstöðu sína til þeirra almennu athugasemda sem komu fram í greinargerð með bókun 35 á sínum tíma sem ég vona að hv. þingmaður hafi lesið. Tíminn er knappur en, með leyfi forseta, segir bókun 35 svo:
„Þar eð með samningi þessum er stefnt að einsleitu Evrópsku efnahagssvæði sem byggist á sameiginlegum reglum, án þess að samningsaðila sé gert að framselja löggjafarvald til stofnana Evrópska efnahagssvæðisins; og
þar eð þessum markmiðum verður því að ná með þeirri málsmeðferð sem gildir í hverju landi um sig.“
Hvernig er þetta ekki kjarninn í því sem við erum að reyna að gera hér? Við erum að stefna að einsleitu Evrópsku efnahagssvæði með þeim markmiðum og þeirri málsmeðferð (Forseti hringir.) sem gildir í hverju landi fyrir sig. Þetta var ætlunin í upphafi og við erum að snúa aftur á sömu braut og við ætluðum að vera á.