Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið en nú er ég í nokkrum vandræðum af því að hv. þingmaður tók plaggið með sér upp á tilvitnaðan texta að gera. En nú ætla ég að koma á óvart. Svar mitt við spurningunni er: Einmitt. Það sem lýst er í þeim texta sem hv. þingmaður las upp var akkúrat það sem gerðist þar, með leyfi forseta, það var það sem var gert. Hér er leitast við einsleitni. Eins og segir í dóminum:
„Skýra skal lög og reglur, að svo miklu leyti sem við á, til samræmis við EES-samninginn og þær reglur sem á honum byggja.“
Þetta var allt gert með galopin augun fyrir 30 árum síðan og bókun 35 innleidd með þeim hætti sem nú stendur algerlega meðvitað. Það var til samræmis við íslenskar stjórnskipunarreglur. Þannig að ég segi bara, hv. þingmaður: Einmitt. Allt sem hv. þingmaður las hér upp og vísaði til er grundvöllur þess hvernig málið var afgreitt og innleitt á sínum tíma. Það þarf ekki forgangsreglu til að ná fram þessum markmiðum. Ef það væri raunin þá væri þessi umræða tóm þvæla, að löggjafarvaldið væri enn hér. Það er búið að halda óteljandi ræður í dag um að við í þinginu getum vissulega samþykkt lög sem ganga gegn EES-rétti. Við þurfum bara að segja það þannig að það er beinlínis leitt út þarna að gildandi réttur verður aldrei sá nákvæmlega sami í öllum löndum af því að þjóðþing geti tekið ákvörðun um að útfæra mál með öðrum hætti, sé það meðvituð ákvörðun. Þannig að meiningin á bak við þennan texta sem hv. þingmaður las upp er önnur að mínu mati heldur en hv. þingmaður kýs að skilja. Er ég ekki að brigsla hv. þingmanni um neitt í þeim efnum heldur finnst mér bara algerlega blasa við sá málskilningur og þess vegna segi ég bara: Einmitt: Þetta tókst vel með innleiðingunni eins og hún stendur núna.