Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Fyrst er það að segja að mér þykir ekkert vænt um samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Ég held að hann sé bara fínn, rétt eins og ég held mér þyki ekki vænt um neina löggjöf sem er í gildandi rétti. Mér þykir reyndar vænt um nokkur mál Miðflokksins sem eru öll góð en það er annað mál. Hvað varðar norsku leiðina treysti ég mér ekki til að fara í djúpan samanburð hér. En miðað við þá yfirborðsþekkingu eða þá þekkingu sem ég hef aflað mér á þeirri nálgun tel ég okkur vera bara á býsna góðum stað með innleiðingu á bókun 35 eins og hún er í íslenskum rétti og var afgreidd fyrir 30 árum síðan og tel ekki ástæðu til að við aðlögum hana, hvorki út frá því sem hér er lagt til né hinni norsku leið, bara til að svara því skýrt. Enda skynja ég í nálguninni eins og hún er lögð til hér einhvers lags fullnaðaruppgjöf íslenskra stjórnvalda fyrir fram, að það sé í rauninni verið að fara í hæsta stig hvað eftirgjöf varðar. Þá myndi ég frekar vilja láta reyna á málið fyrir EFTA-dómstólnum og taka því sem þaðan kemur og bregðast við eftir þörfum. Ég bara ítreka það sem ég held að ég hafi sagt í ræðu minni, að ef þetta var óþarfi og ótímabært í fyrra, hittiðfyrra og árið þar áður, þá finnst mér það blasa við að það sé það núna, sérstaklega í því ljósi að því hefur verið flaggað og komið fram á þessu þingi — reyndar er hæstv. utanríkisráðherra ekki í salnum, vafalaust farinn af svæðinu. Mér finnst blasa við með þá yfirvofandi aðlögunarvegferð sem ríkisstjórnin hefur flaggað hvað aðlögunarferli að Evrópusambandinu varðar að þessi rauði dregill (Forseti hringir.) þurfi að vera upprúllaður til hliðar enn um sinn. Við skulum klára hitt málið. Svo getum við tekið afstöðu til þessa máls sem hefur beðið í áratugi og ekki valdið neinum stórkostlegum skaða. Við brugðumst við (Forseti hringir.) fæðingarorlofsmálum með lagasetningu hér 30. júní, ef ég man rétt. Við erum í fullum færum til að bregðast við ef við teljum það skynsamlegt og viljum gera það.