Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Við fjöllum hér um mál sem er að mínu mati mikilvægt mál. Ríkisstjórnin mat það svo að það væri mikilvægasta mál kjörtímabilsins og hafði það fyrsta mál á dagskrá á fyrra þingi. Þá hélt sá sem hér stendur ræðu við 1. umræðu á þriðjudeginum 11. febrúar 2025 kl. 14:58. Ég ætla að vitna til hennar hér, ég ætla ekki að fara með hana aftur en ég ætla að árétta nokkra þætti í þeirri umfjöllun minni. Ég held að áskorunin í þessu máli sé að það skorti enn á upplýsingagjöf til almennings. Ég hvatti ríkisstjórnina í máli mínu í vor til að fara í slíkt. Ég hef ekki séð það, ekki með nægjanlegum hætti. Ég held að það séu efasemdaraddir í samfélaginu í öllum flokkum, frú forseti, um hvað þetta nákvæmlega þýðir. Þetta er flókið lagatæknilegt mál og að því leytinu er það skylda ríkisstjórnarinnar að skýra málið með betri hætti heldur en verið hefur.
Að mínu mati — og það hefur verið farið yfir það hér í dag eins og ég hef aðeins náð að fylgjast með — þegar þessi bókun er lögð fram á sínum tíma þá var hún talin nægjanleg og virkaði ágætlega lengi framan af. Síðan fór það að gerast að Hæstiréttur fór smátt og smátt að taka aðra afstöðu. Það hefur líka verið minnst á það hér að ríkisstjórnin sem sat 2017–2021 tók til varna í þessu máli og þau bréf hafa verið birt. Við reyndum einfaldlega að benda á hið augljósa, að þar sem þetta hefði gengið býsna vel í tiltekinn tíma þá væri þetta nægjanlegt. Að okkar mati á þeim tíma var rétt að nálgast þetta mál með þeim hætti. Hins vegar hélt dómaframkvæmdin áfram að þróast með þeim hætti að það var sífellt stærri áskorun og endaði í raun og veru á því að Hæstiréttur segir við löggjafarþingið: Þetta er ekki nógu gott, þið verðið að laga þetta. Þá verðum við hér í þessum sal að hlusta á það. Við getum ekki einfaldlega sagt: Þetta er bara þvæla.
Ég held að við höfum verið á réttri leið. En þegar Hæstiréttur hefur að lokum sagt að við verðum að laga þetta og þegar það eru fengnir sérfræðingar, fyrrum hæstaréttardómarar, til þess m.a. að semja þá greinargerð og það frumvarp sem hér liggur fyrir, og hefur legið fyrir í nokkur ár, þá finnst mér erfitt að halda því fram að ég geti ekki treyst því. Ég hef tilhneigingu til að taka mikið mark á mönnum eins og Benedikt Bogasyni og Þorgeiri Örlygssyni. Eins og kemur fram í ágætri álitsgerð, og ég fór einmitt yfir í ræðu minni þann 11. febrúar, sem er skrifuð af Þorgeiri Örlygssyni, fyrrverandi hæstaréttardómara og dómara við Mannréttindadómstólinn, þá finnst mér hann hafa í raun og veru sagt í þessari álitsgerð að þetta sé í okkar höndum. Við getum sett þá löggjöf hér með opin augu. Við þurfum að átta okkur á því að við séum að setja löggjöf sem gangi gegn Evrópulöggjöfinni og innleiða hana með þeim hætti. Ef hún síðan veitir ekki sömu réttindi eða skyldur og takmarkar þannig hagsmuni almennings eða lögaðila í landinu þá verðum við að rökstyðja af hverju okkur finnst að svo eigi að vera.
Með öðrum orðum þá fannst mér verða ákveðin straumhvörf í þessu máli þegar Hæstiréttur tók þetta mál til umfjöllunar. Mér finnst málið hafa skýrst og einfaldast í álitsgerð áðurnefnds Þorgeirs Örlygssonar sem mér finnst gera okkur auðveldara fyrir að fjalla um þetta mál. Það breytir hins vegar ekki því að þetta mál er mikilvægt og það er mikilvægt að umræðan í samfélaginu sé á réttum nótum, þ.e. að réttar upplýsingar séu bornar fram. Það er á ábyrgð núverandi stjórnvalda að gera það. Þessi ræðustóll er auðvitað að einhverju leyti til þess ætlaður en það er mikilvægt að þau sjónarmið komi öll fram og öllu verði svarað og við sem sitjum í hv. utanríkismálanefnd þurfum augljóslega að takast á við það.
Ég heyrði í ræðu hv. þm. Bergþórs Ólasonar að við þyrftum að fara í gegnum af hverju þau rök sem við settum fram í bréfum til ESA á árunum 2017–2018 dygðu ekki í dag. Mér finnst munurinn vera einfaldlega sá að eftir það hefur Hæstiréttur fjallað um málið og sagt: Þið verðið að breyta. Þessi nálgun hér er að mínu mati nægjanleg hvað það varðar. En við munum þurfa í hv. utanríkismálanefnd að kalla til alla þá sem geta hjálpað okkur til þess að greina það og geta svarað öllum spurningum.
Ég vil líka nota mínar síðustu mínútur til að hvetja ríkisstjórnina til þess að útskýra málið fyrir samfélaginu. Af hverju er þetta nauðsynlegt? Að mínu mati er það vegna þess að með þessum hætti tryggjum við í sessi EES-samninginn. EES-samningurinn hefur gefið okkur umtalsverða jákvæða hagsmuni og er að mínu mati okkar leið til að eiga jákvætt samstarf, efnahagslegt, viðskiptalegt og pólitískt, m.a. við Evrópusambandið. Að mínu mati höfum við ekkert í Evrópusambandið að gera og þetta er leið okkar til þess að tryggja það, þ.e. að EES-samningurinn haldi.
Ég er á þeirri skoðun að þetta frumvarp sem hér liggi fyrir sé ásættanlegt. En ég er líka á þeirri skoðun að það þurfi að svara öllum þeim spurningum sem upp verða bornar í þessari umræðu og í 2. umræðu og fyrir nefndinni áður en við ljúkum umfjöllun um málið og gerum þetta frumvarp að lögum.