157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

3. mál
[17:19]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Varðandi dómstólaleiðina, þ.e. EFTA-dómstólaleiðina, að þá er eitt af því sem hefur komið til umræðu hér í dag einmitt hvort og þá hvernig forskrift gæti birst frá viðkomandi dómstól. Ég tel að við ættum að skoða það nánar í nefndinni. Síðan eru það auðvitað sjónarmið hvort við viljum einmitt, eins og hv. þingmaður kom inn á, ekki sjálf bregðast við dómi æðsta dómstóls okkar eigin lands.

Varðandi nefndarstörfin og það sem ég viðraði hér í púltinu áðan þá reynir auðvitað núna á þennan mannlega þátt þessa starfs og góðra samskipta og samvinnu innan nefndarinnar. Það hafa margir tekið hér undir með mér í dag; margir hv. þingmenn og bæði hér í þingsal og utan hans, að við eigum að vinda okkur sem fyrst í nefndarvinnuna og við fáum vonandi til þess frið og tíma og ég hlakka til hennar.