157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

3. mál
[17:20]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mér finnst einmitt kristallast að þegar æðsti dómstóll okkar hefur sagt að það verði að laga þessa hluti, og jafnvel sagt að einhverju leyti til um hvernig það eigi að gerast, þá sé það fullkomlega eðlilegt að við gerum það sjálf en sætum ekki því að fá einhvers konar forskrift eða þvinganir frá ESA sem að mér hefur oft fundist í einstöku málum ganga fram fullbratt, vera með óþarfaþvinganir og stæla, svo ég segi það nú bara hreint út. Það er ekki skilningur á því að það gilda ekki alltaf nákvæmlega sömu lögmál alls staðar, hvað þá hér á Íslandi, á eyju, og við höfum heldur ekki verið nægjanlega dugleg við að fá undanþágur frá innleiðingu á hlutum sem varða okkur ekki neitt en varða augljóslega Evrópuríki sem liggja þétt hvert við annað, þar sem að landamæri eru aðliggjandi og vatn og vindar fara bara frá einu landi til annars á sömu sekúndunni. Þannig að ég er á því að það sé í hlutarins eðli betra fyrir okkur að fjalla um þær sjálf heldur en að láta þvinga okkur til þess. Það er mín afstaða.

Ég fagna þessum hugmyndum hv. þingmanns um að við vindum okkur í nefndarvinnuna og mætum þar lausnamiðuð til þess að finna lausn sem að fleiri geti sætt sig við.