Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég vil bara byrja á að benda hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni, ef hann heyrir í mér, á það sem kom skýrt fram áðan, að Hæstiréttur hefur ekki sagt að það þurfi að laga neitt heldur einungis bent á það augljósa, að bókun 35 hefur ekki verið innleidd hér með þeim hætti sem nú er lagt til.
Nú ræðum við aftur þetta frumvarp sem er kallað bókun 35. Mál sem var einnig á dagskrá á síðasta þingvetri og hefur verið nokkrum sinnum á dagskrá áður án þess að verða samþykkt. Mál sem er risastórt og mun hafa gríðarleg áhrif. Mál sem snýr að því að reglugerðir sem við innleiðum í íslensk lög gangi framar lögum sem við semjum hér á landi, þ.e. reglugerðir frá Evrópusambandinu, EES-reglugerðir. Það er vafi meðal sérfróðra aðila að þetta frumvarp standist stjórnarskrá, þannig að þetta er umræða um fullveldi þjóðarinnar og mögulegt valdaframsal.
Nú hefur þetta mál verið talið flókið en stöldrum bara aðeins við og reynum að einfalda málið og spyrjum okkur: Finnst okkur þetta eðlilegt? Eðlilegt að við séum að láta lög sem við innleiðum frá Brussel ganga framar því sem við höfum samið hér á Íslandi með hagsmuni Íslendinga að leiðarljósi? Finnst fólki það bara vera eitthvað sem hljómar vel? Já, þeir eru örugglega að huga betur að hagsmunum okkar. Er ekki líklegra að við hugum betur að hagsmunum Íslendinga og stöndum svo auðvitað að hagsmunagæslu gagnvart þeim reglugerðum sem hingað koma? En þetta snýr bara að því þegar þessi skörun verður á lögum. Spurningin er þessi: Finnst okkur líklegt að ef þessi lög skarast þá verði það yfirleitt reglugerðir sem við höfum innleitt frá Evrópusambandinu sem verði réttarbót fyrir almenning? Það hefur nú verið mikið rætt um réttarbót og ég hefði sjálf giskað á að það hallaði oftar á almenning á Íslandi ef reglugerðir frá Evrópusambandinu ganga framar lögum sem eru samin á Íslandi.
Svo hefur komið fram í málflutningi þeirra sem styðja bókun 35 að það sé ekki boðlegt að borgarar þurfi að leita réttar síns fyrir dómstólum gegn ríkinu ef þeir njóta ekki þeirra réttinda sem EES-samningurinn á að veita þeim. Það sé mikill valdahalli og óréttlæti. Þetta kom fram hér fyrr í dag. Þá segi ég: Bíddu við, á það ekki bara alltaf við, að borgarar eigi að geta treyst lögum? Lög eiga að vera skýr. En með þessum rökum er verið að segja að við viljum frekar að borgarar þurfi að leita réttar síns þegar þeir geta ekki treyst íslenskum lögum, samin á Íslandi, og að þau lög verði frekar marklaus því önnur lög gangi framar, þá sé í lagi að borgarar þurfi að leita réttar síns. Er það það sem er verið að segja? Aðalatriðið hlýtur alltaf að vera að vanda lagasetningu og passa að lög skarist ekki. Það hlýtur að vera lágmarkskrafa borgaranna að ef það er svona mikilvægt að klára það núna, þrátt fyrir að til standi að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðlögunarviðræður að Evrópusambandinu innan skamms og þetta umdeilda mál getur alveg beðið fram yfir það, þá ætti lágmarkskrafan að vera sú að ná utan um umfang þeirra laga sem skarast og sjá hvar halli á borgarana og hvar er klárlega betur gætt að hagsmunum borgaranna, eins og lögin eru í dag, og grípa til ráðstafana til að leiðrétta þegar lög skarast og laga lög svo þau verði eins og við viljum hafa þau. Finnum hvar þessi skörun er og gerum bragarbót á ef íslensk lög samin hér eru talin á einhvern hátt halla á réttindi fólks. Það sama á við öfugt. Fyrir mér er alla vega alveg ljóst að við getum ekki farið í 2. umræðu um þetta mál án þess að þessar upplýsingar liggi fyrir því bókun 35 hefur verið gríðarlega umdeild og stór hópur landsmanna, sem og alþingismanna, hefur talið þetta mál ganga í berhögg við þann trúnaðareið sem við alþingismenn tókumst á hendur gagnvart stjórnarskrá landsins. Meðal þessara einstaklinga má nefna hæstv. samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Eyjólf Ármannsson.
En í því máli sem hér er til umfjöllunar felst líka að það er sett afturvirk forgangsregla í íslenskan rétt sem felur í kjarna sínum í sér að allar þær EES-gerðir sem innleiddar eru hér á landi njóti forgangs umfram íslensk lög. Forgangsreglan sem hér á að setja í lög er tímalaus í þeim skilningi að hún gildir bæði um allar þær hundruð gerða sem við höfum innleitt í íslenskan rétt síðustu rúmlega 30 ár, en hún gildir líka um allar þær gerðir sem við innleiðum í framtíðinni. Margir lögfræðingar og jafnvel embættismenn halda því fram að í þessari reglu felist ekkert nýtt, hér sé aðeins verið að gæta að lagasamræmi og meginreglum um einsleitni reglna á EES-svæðinu. Sé horft á málin frá þrengri Evrópuréttarfræðum má eflaust sjá réttmæti í þeirri skoðun. En við sem erum hér inni, stjórnmálamennirnir, höfum hins vegar þær skyldur að horfa á stjórnskipunarlega og pólitíska hlið þessa máls og frá þeirri hlið er þetta mál risastórt.
Hæstv. utanríkisráðherra telur að þetta sé neytendamál. Það verði að breyta innleiðingu okkar á bókun 35 fyrir neytendur. Þetta er miklu stærra mál en svo að vera bara neytendamál. Þetta gæti einnig skert rétt neytenda. Skörunin, eins og við fórum yfir áðan, virkar nefnilega í báðar áttir. Það getur vel verið að ef bókun 35 verði innleidd og þetta frumvarp verði að lögum þá halli á réttindi borgaranna. Og eins og við fórum yfir, er það ekki bara nokkuð líklegt að þau lög sem við ákváðum að semja hér, á Alþingi Íslendinga, og voru samin á Íslandi, og hugsuð fyrir hagsmuni þjóðarinnar, séu oftar jafnvel betur til þess fallin heldur en þær gerðir sem við innleiðum í lög hér? Ég myndi alveg giska á að það væri oftar sem svo væri.
Við mat á þessu frumvarpi verður að horfa á sögulegan bakgrunn þess. Við Íslendingar innleiddum bókun 35 við lögfestingu EES-samningsins með 3. gr. laganna. Í þeirri grein felst túlkunarregla en ekki forgangsregla. En hvers vegna ætli við höfum innleitt bókunina með þessum hætti? Vegna þess að stjórnmálamenn þess tíma, þegar EES-samningurinn var lögfestur, settu stjórnarskrána í forgrunn. Þeir sáu að með innleiðingu forgangsreglu EES-réttar yrði gengið yfir hina rauðu línu 2. gr. stjórnarskrárinnar sem mælir fyrir um að það sé Alþingi sem fari með löggjafarvaldið. Með öðrum orðum hefði falist í forgangsreglu valdaframsal sem færi í bága við 2. gr. stjórnarskrárinnar. Þess vegna var bókun 35 innleidd sem túlkunarregla og að íslensk lög skyldu túlkuð til samræmis við EES-reglur en ekki að EES-reglur skuli hafa forgang umfram íslensk lög. Bara það eitt að í því frumvarpi sem hér er til umfjöllunar segir að Alþingi þurfi að mæla fyrir um annað ef Alþingi vill ekki að EES-regla hafi forgang er bein staðfesting þess að í þessu lagafrumvarpi felst takmörkun á löggjafarvaldi Alþingis. Sú aðferð sem við völdum til að innleiða bókun 35 árið 1993, sem túlkunarreglu en ekki forgangsreglu, stóð athugasemdalaus af hálfu ESA í 25 ár eða allt þar til formleg kvörtun barst frá ESA í desember 2017. Af hverju eigum við nú að beygja af þeirri leið sem við mörkuðum í þessu máli? Hefur eitthvað breyst? Hefur ekki gengið mjög ágætlega að innleiða EES-gerðir í íslenskan rétt og kannski fullvel á köflum?
ESA vill að tryggður verði ófrávíkjanlegur forgangsréttur EES-reglna í íslenskum rétti. Þetta ákall kemur ekki innan úr stjórnkerfinu heldur að utan frá ESA og með því að samþykkja nýja 4. gr. EES-laga er farið í bága við stjórnarskrána. Með þessari reglu er lögfest tímalaus forgangsregla í íslenskan rétt sem gildir yfir allar fyrri innleiðingar á EES-reglum í íslenskan rétt, 32 ár aftur í tímann.
Þegar hér var umræða um orkupakka þrjú þá náðist samkomulag þess efnis að ekki yrði sæstrengur lagður hér án þess að það kæmi til afgreiðslu hér á Alþingi. Þið getið ímyndað ykkur hvort sú þingsályktun megi sín ekki lítils ef þetta frumvarp verður að lögum, því að með skýlausum forgangi EES-reglna í íslenskan rétt fyrir íslensk lög má færa að því rök að gengið sé bakdyramegin inn í Evrópusambandið án þess að kjósendur í þessu landi séu spurðir hvort það sé vilji þeirra. Það er kannski ein af ástæðunum fyrir þessum mikla áhuga hjá ríkisstjórninni, þ.e. að taka öll þau skref sem hún getur tekið til að auðvelda leiðina inn í Evrópusambandið. Við verðum að skoða þetta mál með það í huga vegna þess að það er ekkert sem liggur á í þessu máli og núna þegar liggur fyrir að við séum að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðlögunarviðræður við Evrópusambandið, þá væri eðlilegast að bíða fram yfir það áður en þetta mál er afgreitt. Ef fólk er ekki tilbúið að gera það, af hverju ekki bara að spyrja um þetta mál samhliða þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópusambandið? Það væri ein leið sem væri betri en sú sem nú er farin.
Ríkisstjórnin virðist alla vega alveg hafa gefist upp á því verkefni að stjórna Íslandi og gæta hagsmuna Íslendinga því það er alveg sama hvaða mál kemur, það má ekki breyta þeim gerðum sem koma hér á færibandinu. Við sáum þetta með flugskattana, það á bara að fresta þeim, skattar sem henta á engan hátt Íslandi, en þeir eru ekki stöðvaðir. Þannig að finnst einhverjum líklegt að fulltrúar frá þessari ríkisstjórn muni einhvern tímann setja einhverja fyrirvara við þau lög sem við semjum hér á Alþingi Íslendinga, að þau eigi að ganga framar? Málið er líka það að það er erfitt að átta sig á því hvenær við ættum að setja þessa fyrirvara vegna þess að það er ómögulegt að átta sig á því hvað Evrópusambandinu dettur í hug þegar kemur að EES-reglum. Það er alveg ómögulegt að átta sig á því.
Það var nú ein saga hér í fyrri umræðum um saltið, það kom einhver reglugerð um hversu mikið salt mætti vera á móti hveiti þegar verið væri að baka brauð. Þjóðverjar urðu alveg vitlausir. Þetta var ekki eins og þeir vildu baka sitt brauð en þeir gátu sennilega lítið sagt, verandi í Evrópusambandinu en létu þó í sér heyra þarna. Bændurnir, sem betur fer, láta oft í sér heyra, sérstaklega í Frakklandi og Þýskalandi. En haldið þið að okkur hefði dottið í hug að það hefði þurft að setja fyrirvara við einhver íslensk lög um hlutfall á milli hveitis og salts ef við vildum ekki okkar bakarí þyrftu að una við þetta? Nei, okkur hefði aldrei dottið það í hug því það er ekki nokkur leið að átta sig á hvaða gerðir koma inn í framtíðinni.
Ég ítreka að það er algjört lykilatriði að þetta mál getur ekki farið í 2. umræðu fyrr en það er búið að greina þær gerðir þar sem verður skörun. Það er lykilatriði. Við getum ekki samþykkt þetta frumvarp á meðan við vitum ekki hve skörunin er, hvar það gæti verið kostnaður fyrir ríkið eða hvar hallar á almenna borgara. Er það í innleiddum EES-reglugerðum? Er það í íslenskum lögum? Þetta verður að liggja fyrir áður en farið er lengra. Það hafa ekki verið, finnst mér, færð sannfærandi rök fyrir þörfinni á þessari innleiðingu og alls ekki með þeim hætti sem nú er lagt til og sérstaklega í ljósi þess hvað það tók langan tíma hjá ESA að gera athugasemdir. Það bendir frekar til þess að það hafi haft meira með mannafla hjá ESA að gera heldur en innleiðinguna á Íslandi. Það var mögulega kannski bara einhver fulltrúi ríkisstjórnarinnar sem hefur það sérstaka áhugamál að koma þessu í gegn sem starfar erlendis, ég skal ekki segja hvernig á þessu stóð, eða vegna þess að hér hafa verið felldir dómar sem ESA hugnast ekki og þess vegna þurfi forgangsreglu í stað þeirrar túlkunarreglu sem viðhöfð hefur verið.
Með framlagningu þessa frumvarps byrjaði ríkisstjórnin á öfugum enda. Þessi ríkisstjórn hefur nú þegar ákveðið að það sé þjóðin sem eigi að ákveða hver verði framtíðarsamskipti gagnvart Evrópusambandinu með þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram á að fara innan skamms. Við hljótum þá að spyrja, og ég spyr aftur: Er ekki rétt að fresta þessari lögfestingu á bókun 35 sem hér er lögð til fram yfir boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu því þetta frumvarp er mjög stefnumarkandi fyrir þá vegferð sem þjóðin sjálf á að taka ákvörðun um innan næstu tveggja ára samkvæmt ákvörðun þessarar ríkisstjórnar? Það er til þess fallið að veikja EES-samninginn ef túlkun okkar fer að verða sú að við verðum bara að láta undan, við verðum að hlýða, við séum ekki á neinum jafnréttisgrundvelli í þessu samstarfi og það að kvarta eða tefja geti bara orðið til þess að okkur verði hent út. Það er ekki góður málstaður.