157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

3. mál
[17:37]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Ég ætla að leggja hér nokkur orð í belg hvað varðar þetta frumvarp, um bókun 35, enn og aftur. Þetta frumvarp hefur komið fyrir þingið áður nokkrum sinnum. Það hefur t.d. vakið athygli að nokkrir þingmenn sem eru nú í stjórnarliðinu hafa hér á fyrri tímum, í þeirra fyrra lífi talið að bókun 35, þar á meðal lögfræðingar í þeim flokki, ég er að tala um hv. þingmenn Flokks fólksins, að bókunin stæðist ekki stjórnarskrá íslenska lýðveldisins. Þar sem ég er sammála þeim þá ætlaði ég að flytja mína ræðu í þeim anda og reyna að greina þetta á einfaldan hátt fyrir áheyrendum og þingmönnum hér í salnum. Þetta er ekkert nýtt vandamál.

Ég greip það hér í umræðunni í dag að sumir þingmenn, þar á meðal hv. þm. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, töluðu um að bókunin hafi ekki verið réttilega innleidd á sínum tíma. Ég held að fleiri hafi orðað það á svipaðan hátt. Þetta er auðvitað, frú forseti, alrangt. Þetta er alrangt. Bókunin var innleidd nákvæmlega eins og hún var innleidd af ástæðu. Menn voru fullmeðvitaðir um það hvað þeir voru að gera á þeim tíma. Lögspekingar á þeim tíma, fyrir 32 árum, voru með það alveg á kristaltæru að svona myndu þeir ná að samþykkja samninginn um Evrópska efnahagssvæðið þannig að það væri ekki stórkostlegur vafi á þeim tíma á því að þetta myndi standast stjórnarskrá. Hins vegar ef þeir myndu innleiða þetta með þeim hætti sem þetta frumvarp talar um, þá voru spekingar á þeim tíma á því að það yrði árekstur við stjórnarskrá. Þess vegna, frú forseti, var þetta innleitt á þann hátt sem það var gert með þessari túlkunarreglu í 3. gr. Menn vissu nákvæmlega hvað þeir voru að gera, þannig að orða þetta þannig að bókunin hafi ekki verið rétt innleidd á sínum tíma — ég geri stórkostlegar athugasemdir við það. Menn voru að innleiða þetta á þann hátt sem þeir gerðu vitandi vits, þannig að þetta voru engin mistök og það er ekki verið að leiðrétta neitt.

Nú eru menn bara að ganga lengra. Vegna hvers, frú forseti? Vegna þess að Eftirlitsstofnun EFTA, þ.e. ESA, hefur verið að gera athugasemdir við að forgangsréttur Evrópulöggjafar sem innleidd er á Íslandi sé ekki að virka með þeim hætti sem þeir telja vera rétt samkvæmt EES-samningnum. Hárrétt. Svo þegar þingmenn koma hér upp í pontu, ekki einn, heldur fleiri stjórnarþingmenn og fullyrða það að Hæstiréttur hafi sagt að þetta þyrfti að laga, að þetta þyrfti að innleiða, er stórkostlegur misskilningur, frú forseti. Ég legg til að þessir þingmenn lesi þennan tilvitnaða dóm, sem menn eru nú að vitna til, þ.e. fæðingarorlofsdómsins, aðeins betur vegna þess að dómurinn er einfaldlega að segja bara það sem liggur í augum uppi. Dómurinn segir að svona hafi þetta verið innleitt og þess vegna sé niðurstaða dómsins á þann veg sem hún var, þ.e. að íslensku lögin sem skárust þarna á innlenda löggjöf gangi framar vegna þess að innleiðingin var ekki með nægilega skýrum hætti. Svo einfalt er það, frú forseti. Svo einfalt er það. Þeir eru bara að lýsa löggjöfinni á Íslandi eins og þeim ber að gera. Þeir eru ekki að mælast til þess að þetta verði innleitt, þeir eru bara að dæma eftir íslenskri löggjöf og innleiddum EES-reglum eins og það kemur fyrir í lagasafninu.

Einfaldasta leiðin í þessu máli að mínu viti er einfaldlega að þegar að það kemur löggjöf frá Evrópusambandinu sem við eigum að innleiða þá sé hún innleidd eins og vera ber, þ.e. að hún sé innleidd réttilega þannig að hún gildi hér á landi eins og henni ber að gera. Þá værum við ekki að tala um neitt vandamál, frú forseti. Árekstrarnir verða. Þeir eru reyndar fáir, frú forseti. Árekstrarnir verða þegar það er ekki gert og íslensk löggjöf skarast á við innleiddu löggjöfina og gengur síðan framar ef málin fara fyrir dómstóla. Þá kemur ágreiningur upp og þessi árekstur.

Ég verð líka að segja það, frú forseti, að það er hálfspaugilegt, svo ekki sé meira sagt, að fara í þessa vegferð sem mun kosta gjörbyltingu, frú forseti, í starfi lögfræðinga og lögmanna hér á landi, gjörbyltingu fyrir þann kostnað sem við erum að gjalda á slælegri innleiðingu sem veldur því að við fáum dómsmál á okkur endrum og sinnum, hæstv. utanríkisráðherra. Endrum og sinnum fáum við dómsmál á okkur þar sem við höfum ekki innleitt réttilega og þurfum hugsanlega að borga bætur. Örfá mál miðað við þann kostnað sem vegið er á móti því, að gjörbreyta vinnuumhverfi lögfræðinga, dómara á Íslandi, til framtíðar með innleiðingu bókunar því hvernig haldið þið að vinnuborð lögfræðinga á Íslandi verði framvegis þegar þetta er orðið að lögum? Það verða að sjálfsögðu Evrópureglugerðir eins þykkar og þær nú eru margar hverjar og stórar og miklar að vöxtum upp á öllum borðum. Menn munu leita dyrum og dyngjum að reglum frá Evrópu til að geta vísað í. Allur þessi kostnaður, frú forseti, vegur upp á móti örfáum dómsmálum sem við þurfum að játa á okkur, og játa það að við höfum ekki innleitt einhverjar reglugerðir réttilega, sem er handvömm, sem er ákveðin handvömm í Stjórnarráðinu eða hugsanlega Alþingi. Ég held að það sé frekar Stjórnarráðið sem gæti tekið á sig þennan kaleik, að játa handvömm í innleiðingu ef út af ber. En miðað við stærðarhlutföllin og alla þá vinnu sem við erum að fara í í dómstólum landsins, í öllum málaferlum, og spretta upp á Íslandi þá munu menn ekki hafa lagasafnið sem lengi vel rúmaðist í einni bók, íslenska lagasafnið, í einni bók. Menn munu ekki hafa íslenska lagasafnið með inn í dómsalina. Nei, þeir munu hafa alla Evrópulöggjöfina með sér og leita dyrum og dyngjum að röksemdum til að styðja mál sitt. Það verður gjörbreyting á vinnu lögfræðinga og lögmanna á Íslandi. Þetta er punktur sem ég vildi nefna. Af nógu er að taka.

Ég er afskaplega ánægður og þakklátur að hæstv. utanríkisráðherra er kominn í salinn og fær að heyra mál mitt. Ég mun þá reyna að tala um það sem mér finnst skipta mestu máli svo það nái hennar eyrum. Hvað liggur á, frú forseti? Við hvað eru menn hræddir? Hvað liggur á? Við erum búin að innleiða þetta svona fyrir 32 árum. Núna þarf að bæta um betur og setja inn forgangsreglu. Hver er þessi forgangsregla, frú forseti? Ég nefndi það hér á síðasta þingi að staðan væri einfaldlega sú, að ef við hér í þinginu sjáum eitthvert gott lagafrumvarp og ákveðum að samþykkja það hér í góðri trú um að það breyti einhverju úti í samfélaginu og geri einhverja góða hluti, síðan kemur í ljós einhver árekstur við einhverja Evrópureglu sem liggur einhvers staðar í kerfinu hjá okkur sem er andstæð, þá er þessari lagareglu sem við vorum að samþykkja, kannski núna á þessu þingi, bara varpað fyrir róða vegna þess að Evrópureglugerðin sem fer í bága við hana gengur framar. Þetta frumvarp hér fjallar um þetta, að í sumum tilvikum verði lagasetningarvald Alþingis og okkar þingmanna skert. Það er bara einfalt. Það verður skert vegna þess að það er einhvers staðar einhver Evrópuregla sem við höfum innleitt hér sem mun varpa henni bara í ruslið.

Hvað kallast þetta á mannamáli? Þetta kallast skert lagasetningarvald Alþingis og það fer í bága við 2. gr. stjórnarskrárinnar. Það er svo einfalt, því hún segir: „Alþingi og forseti Íslands fara saman með löggjafarvaldið.“ En þarna er búið að búa til nýja forgangsreglu, þarna verður gerð ný forgangsregla sem segir: Setjið ykkar lög en ef við höfum hérna Evrópureglur sem við erum búin að innleiða þá eru þessi lög höfð að engu. Þau eru höfð að engu jafnvel þótt við setjum þau núna á þessu þingi . Ef það er einhver Evrópuregla frá því í fyrra eða hittiðfyrra, þá hefur hún hana að engu. Hvað þýðir þetta? Skert lagasetningarvald, hv. þm. Sigurður Helgi Pálmason, skert lagasetningarvald. Margir lögfræðingar og fræðimenn hafa þessa skoðun, margir, ekki allir. Þeir eru margir en ekki allir. Einhverjir segja að þetta sé allt í lagi. En þessi bókun var innleidd með þessum hætti 1993 af ástæðu, menn höfðu opin augu og að halda því fram að hún hafi ekki verið innleidd á réttan hátt er rangt. Hún var innleidd nákvæmlega eins og menn ætluðu að innleiða hana.

Hvað hefur breyst í þessi 32 ár? Hvað liggur á og hver er áhættan, frú forseti? Ef við samþykkjum ekki þetta frumvarp, hver er áhættan? Hvað gerist þá? Það sem gerist þá er að ESA mun skoða málið frekar, senda hingað einhver bréf, fara hugsanlega í samningsbrotamál við okkur, og hvað með það? Af hverju eru menn svona logandi hræddir við það? Hver er áhættan? Hún er bara ekki nokkur, frú forseti. Mér heyrðist á sumum þingmönnum fyrr í dag að menn væru bara logandi hræddir við það ef einhverjir menn í Brussel myndu horfa til Íslands og segja: Heyrðu, þeir eru ekki að gera þetta rétt, og senda okkur eitthvað bréf. Nei, við þurfum ekkert að vera hræddir. Þetta var innleitt á sínum tíma, þetta er búið að vera í 32 ár, hefur gengið ágætlega, við höfum fengið á okkur einhver örfá mál vegna slakrar innleiðingar, frú forseti, á löggjöfinni.

Ég vil líka í lokin mótmæla því sem ég heyri hér hjá stjórnarþingmönnum alltaf aftur og aftur, að málflutningur þeirra sem mæla gegn þessu frumvarpi sé með þeim hætti að þeir séu á móti EES-samningnum. Ég vil bara mótmæla þessum málflutningi. Þetta er náttúrlega bara hræðsluáróður og ósanngjarnt. Þetta þýðir ekkert að við séum á móti EES-samningnum. Það þýðir bara að við þurfum ekki að fara þessa vegferð, við þurfum þess ekki. Hún brýtur gegn stjórnarskránni og þú sneiðir af henni sífellt meira og meira eftir því sem þú gengur lengra á þennan veg.

Ég óska þess að þetta frumvarp hljóti góða og vandaða meðferð í hv. utanríkismálanefnd og þar sé rætt við helstu fræðimenn á þessu sviði til að upplýsa sérstaklega um stjórnarskrárhluta frumvarpsins.