157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

leit að olíu og gasi við Ísland.

[15:15]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Forseti. Mig langar að byrja á að óska hæstv. ráðherra til hamingju með kjörið sem varaformaður Viðreisnar. Þann 20. febrúar síðastliðinn spurði ég hins vegar hæstv. umhverfis–, orku– og loftslagsráðherra hvort hann væri tilbúinn að stuðla að því að hér yrðu gefin út tilskilin leyfi til olíuleitar í þeim tilgangi að skoða hvort við sitjum mögulega á ónýttum auðlindum sem við getum unnið á umhverfisvænni hátt en flestir aðrir. En stutta svarið var: Nei, það er ekki áherslumál hjá þessari ríkisstjórn að halda áfram olíuleit. Núna hefur umræðan fengið að þróast og það liggur fyrir að rannsóknir sem hafa verið unnar gefa góð fyrirheit. Þótt við getum flest verið sammála um mikilvægi þess að orkuskipti fari fram er staðreyndin sú að jarðefnaeldsneyti heldur áfram að vera mikilvægt til framtíðar, sérstaklega fyrir þau lönd sem eru háð innflutningi á orku vegna aukins íbúafjölda og efnahagsvaxtar í þróunarlöndum.

Einnig hefur staða heimsmála undanfarið vakið umræðu um öryggi þjóða og þetta vita Norðmenn. Í fyrra veittu norsk stjórnvöld 62 ný leyfi til olíuleitar sem er veruleg aukning frá árinu á undan og ekkert lát virðist á norska olíuævintýrinu. En er möguleiki á íslenska olíuævintýrinu? Ég spyr ráðherra, sem ég veit að er áhugamaður um að lækka skuldir ríkissjóðs: Er hann tilbúinn sem ráðherra fjármála að ýta við því að ríkisstjórnin muni styðja við þá vegferð að leit og vinnsla á olíu og gasi til að mynda á Drekasvæðinu fari fram? Mögulega gæti hann þannig lagt grunn að mikið betri ríkissjóði til komandi kynslóða.