leit að olíu og gasi við Ísland.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir ágæta spurningu og jafnframt heillaóskirnar. Það hefur legið fyrir í allnokkurn tíma að á Drekasvæðinu kynni að finnast olía. Hafsbotninn þar er mun eldri en restin af hafsbotninum í kringum Ísland og raunar eitt af örfáum svæðum þar sem nokkur von er til þess að slík vinnsla verði möguleg. Eins og hv. þingmaður veit voru gefin út leyfi til leitar á sínum tíma. Það er hins vegar ljóst að vinnsla á olíu á því dýpi sem um er að ræða á Drekasvæðinu og einnig í þeim skilyrðum sem þar eru yfirleitt er krefjandi. Ég er sannfærður um að hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra er með augun á þessum bolta. Tilfellið er að til þess að þetta sé mögulegt þarf til þess áhuga þeirra sem búa yfir þekkingu og tækni til að vinna við þau krefjandi skilyrði sem eru á Drekasvæðinu og ég treysti honum fyllilega til að fara með þau mál.