leit að olíu og gasi við Ísland.
Forseti. Ég þakka svarið og ég er eiginlega bara glöð að þetta var ekki beint nei. Ég vil samt einnig vekja athygli á því að það þarf ekki bara áhuga þeirra sem þekkja til, það fer enginn af stað ef það er enginn áhugi hjá stjórnvöldum. Ég vona því að áhugi hjá stjórnvöldum verði einhver á því að styðja við þetta.
En ég ætla að fara aðeins yfir í annað af því að hér á eftir erum við að fara að ræða frumvarp um að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Gríðarlega viðamikið frumvarp og margt ágætt þar að finna en greinargerðin er mjög villandi þegar rætt er um kostnað við frumvarpið. Ríkissjóður virðist ekki ætla að gera ráð fyrir auknum kostnaði en sveitarfélögin telja að þetta muni auka kostnað gríðarlega. Því spyr ég hæstv. ráðherra: Hvað er rétt í þessu? Mun kostnaðurinn aukast og hversu mikið? Eða eru þetta í raun engar réttarbætur fyrir fatlað fólk, aðeins verið að lögfesta eitthvað sem ekki er farið eftir í dag?