157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

leit að olíu og gasi við Ísland.

[15:19]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir aðra ágæta spurningu. Nú er auðvitað ljóst að það liggur ekki fyrir hversu umfangsmikill kostnaður verður af þeim réttarbótum sem ég er sannfærður um að ég og hv. þingmaður erum sammála um að er löngu tímabært að innleiða í þágu fatlaðra á Íslandi. Ísland hefur eftir fremsta megni reynt að sinna þessum málaflokki og mjög margt áunnist í því efni. Hvort samningurinn muni leiða til mikilla breytinga á kostnaði sveitarfélaga við fatlaða á eftir að koma í ljós. Það er ekki mögulegt að spá fyrir um alla þróun. Það er hins vegar mat stjórnvalda að þessi kostnaður sé ekki umfangsmikill þó að við teljum að um verulega réttarbót fyrir þennan hóp sé að ræða.