157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[15:42]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Forseta er ljúft og skylt að svara fyrir þessa afgreiðslu. Hún er þannig að fyrirspurnin var kynnt forseta þannig að þetta væri til allra ráðuneyta, allra ráðherra í ríkisstjórn Íslands. Mín leiðbeining til þingmannsins er að þetta sé skýrslubeiðni; snýst ekki um að hafna efni fyrirspurnarinnar heldur snýst um umfang hennar. Ég vona að það hafi komist til skila.